Félagsmálaráðuneyti

909/2000

Reglugerð um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. - Brottfallin

909/2000

REGLUGERÐ
um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks.

I. KAFLI
Gildissvið.
1. gr.
Gildissvið.

Tryggingastofnun ríkisins annast greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks þegar um er að ræða:

a. fæðingu,
b. frumættleiðingu barns yngra en átta ára,
c. töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur,
d. fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu,
e. andvanafæðingu eftir 22ja vikna meðgöngu.


II. KAFLI
Greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.
2. gr.
Foreldri á innlendum vinnumarkaði.
Foreldri sem starfar á innlendum vinnumarkaði öðlast rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið samfellt í starfi, sbr. 1. mgr. 4. gr., í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir upphafsdag fæðingarorlofs.

Mánaðarleg greiðsla til foreldris skv. 1. mgr., sem er starfsmaður og leggur niður störf, skal nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við 12 mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveimur mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs. Til launa teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald. Jafnframt teljast til launa þær greiðslur sem koma til skv. b.–d.-lið 4. gr.

Mánaðarleg greiðsla til foreldris skv. 1. mgr., sem er sjálfstætt starfandi og leggur niður störf, skal nema 80% af reiknuðu endurgjaldi sem greitt hefur verið tryggingagjald af fyrir sama tímabil og í 2. mgr.

Mánaðarleg greiðsla til foreldris sem hefur bæði verið starfsmaður og sjálfstætt starfandi skal nema 80% af meðaltali heildartekna skv. 2. og 3. mgr. á tímabilinu.

Meðaltal heildarlauna miðast við þann fjölda mánaða á umræddu viðmiðunartímabili sem foreldri hefur sannanlega verið á vinnumarkaði í a.m.k. 25% starfi.

Greiðsla í fæðingarorlofi til foreldris í 25–49% starfi í hverjum mánuði skal þó aldrei vera lægri en sem nemur 54.869 kr. á mánuði og greiðsla til foreldris í 50–100% starfi í hverjum mánuði skal aldrei vera lægri en sem nemur 76.049 kr. á mánuði.

Ætli foreldri að haga fæðingarorlofi á þann veg að það verði tekið samhliða minnkuðu starfshlutfalli, með samkomulagi við vinnuveitanda, skulu greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði nema 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem svara til þess starfshlutfalls sem fæðingarorlofið telst til.


3. gr.
Samlagning starfstímabila.
Taka skal til greina starfstíma foreldris í öðrum ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins þegar meta skal hvort foreldri hafi verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir upphafsdag fæðingarorlofs, enda hafi foreldri unnið hér á landi í a.m.k. einn mánuð á þeim tíma.

Við ákvörðun á mánaðarlegri greiðslu til foreldris skv. 1. mgr. skal eingöngu höfð hliðsjón af meðaltali heildartekna þann tíma sem foreldri hefur unnið á innlendum vinnumarkaði á hinu 12 mánaða viðmiðunartímabili, sbr. 2.–4. mgr. 2. gr.

Til að heimilt sé að taka til greina starfstímabil í öðrum ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins skv. 1. mgr. skal foreldri afhenda Tryggingastofnun ríkisins staðfesta yfirlýsingu (E-104) sem sýnir hvaða tryggingatímabilum foreldri hefur lokið samkvæmt þeirri löggjöf sem það heyrði undir.

Hafi verið gerður samningur við annað ríki sem nær til greiðslna vegna fæðingar barns, ættleiðingar eða töku barns í varanlegt fóstur skal meta starfstíma foreldris í því ríki samkvæmt ákvæðum samningsins.


4. gr.
Samfellt starf.
Með samfelldu starfi er átt við að foreldri hafi verið í a.m.k. 25% starfi í hverjum mánuði á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir upphafsdag fæðingarorlofs.

Til samfellds starfs telst enn fremur:

a. orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti,
b. sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur eða er á biðtíma eftir atvinnuleysisbótum samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar,
c. sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga eða er á biðtíma eftir dagpeningum, enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum,
d. sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slysa.


5. gr.
Starfshlutfall.
Þegar meta á starfshlutfall starfsmanns skv. 4. mgr. 13. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof skal fara eftir fjölda vinnustunda foreldris á mánuði á sex mánaða samfelldu tímabili fyrir upphafsdag fæðingarorlofs. Foreldri sem hefur unnið 86–172 vinnustundir á mánuði telst vera í 50–100% starfi en foreldri sem hefur unnið 43–85 stundir á mánuði telst vera í 25–49% starfi. Þó skal jafnan taka tillit til fjölda vinnustunda sem teljast fullt starf samkvæmt kjarasamningi.

Sé foreldri ekki í sama starfshlutfalli á sex mánaða samfelldu tímabili fyrir upphafsdag fæðingarorlofs skal miða við meðaltal starfshlutfalls yfir tímabilið. Þó má foreldri aldrei vera í minna en 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði, sbr. 1. mgr. 4. gr. Starfshlutfall miðast eingöngu við störf sem unnin eru á innlendum vinnumarkaði.

Starfshlutfall foreldris sem fær greiddar atvinnuleysisbætur á þeim tíma sem um ræðir miðast við það starfshlutfall sem tekið er mið af við útreikning atvinnuleysistryggingabóta.

Starfshlutfall foreldris sem fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga miðast við það starfshlutfall sem tekið er mið af við útreikning dagpeninga.

Þegar meta á starfshlutfall sjálfstætt starfandi foreldris skal fara eftir viðmiðunarreglum ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald í staðgreiðslu á því ári sem um ræðir.

Sé um að ræða launað starf við gæslu barna í heimahúsi telst heilsdagsgæsla eins barns á mánuði nema fjórðungi úr fullu starfi eða 43 vinnustundum á mánuði, sbr. reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum. Leggja skal fram staðfestingu á starfsleyfi og tekjum.

Vinnuframlag maka bónda á búinu skal metið sem a.m.k. 50% starfshlutfall þegar makinn er hvorki formlega skráður sem aðili að búrekstri né starfar utan búsins.


6. gr.
Fjölburafæðingar.
Þegar um er að ræða fjölburafæðingu skal framlengja sameiginlegan rétt foreldra til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði um þrjá mánuði fyrir hvert barn umfram eitt, enda fæðist tvö eða fleiri börn á lífi.

Þegar foreldrar ættleiða fleiri börn en eitt í einu eða taka fleiri en eitt barn í varanlegt fóstur á sama tíma skal framlengja sameiginlegan rétt þeirra til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði um þrjá mánuði fyrir hvert barn umfram eitt.


7. gr.
Veikindi móður á meðgöngu.
Sé þungaðri konu nauðsynlegt af heilsufarsástæðum að leggja niður launuð störf meira en mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag barns skal hún eiga rétt á greiðslum í fæðingarorlofi þann tíma en þó aldrei lengur en tvo mánuði. Beri fæðingu að fyrir áætlaðan fæðingardag barns fellur heimild til lengingar vegna heilsufarsástæðna niður frá þeim tíma.

Með heilsufarsástæðum er hér átt við:

a. sjúkdóma sem upp koma vegna meðgöngu og valda óvinnufærni,
b. sjúkdóma, tímabundna eða langvarandi, sem versna á meðgöngu og valda óvinnufærni,
c. fyrirbyggjandi meðferð til að koma í veg fyrir fyrirburafæðingu eða til að vernda heilsu fósturs, enda valdi meðferðin óvinnufærni.

Rökstyðja skal þörf fyrir lengingu á fæðingarorlofi samkvæmt ákvæði þessu með vottorði læknis. Tryggingayfirlæknir skal meta læknisfræðilega hvort lenging fæðingarorlofs er nauðsynleg. Jafnframt þarf að fylgja staðfesting vinnuveitanda þar sem fram kemur hvenær launagreiðslur féllu niður.


8. gr.
Öryggi og heilbrigði á vinnustöðum.
Sé nauðsynlegt af öryggis- og heilbrigðisástæðum á vinnustað að veita þungaðri konu leyfi frá störfum, sbr. reglugerð um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti, skal hún eiga rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði þann tíma.

Starfsmaður skal leggja fram vottorð vinnuveitanda um leyfið ásamt rökstuðningi hans fyrir ástæðum þess.

Tryggingastofnun ríkisins getur óskað eftir því að Vinnueftirlit ríkisins endurskoði ákvörðun vinnuveitanda um leyfisveitingu. Beiðni um endurskoðun skal liggja fyrir innan 14 daga frá því ákvörðun var formlega tilkynnt, sbr. reglugerð um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti.


9. gr.
Lengri sjúkrahúsdvöl barns en sjö dagar.
Þurfi barn að dvelja á sjúkrahúsi lengur en sjö daga í beinu framhaldi af fæðingu er heimilt að framlengja sameiginlegan rétt foreldra til fæðingarorlofs um þann dagafjölda sem barn dvelur á sjúkrahúsi fyrir fyrstu heimkomu. Þó má aldrei lengja fæðingarorlof af þessari ástæðu lengur en um fjóra mánuði. Heimild þessi á einnig við þegar barn fæðist fyrir áætlaðan fæðingardag og þarf að dvelja lengur á sjúkrahúsi af þeim sökum.

Upphaf greiðslna miðast við fæðingardag barns og lok þeirra við fyrstu heimkomu barns eftir fæðingu. Ef um fjölburafæðingu er að ræða gildir dvalartími þess barns sem lengur/lengst dvelst á sjúkrahúsinu. Ef barn innritast að nýju á sjúkrahús veitir það ekki rétt til frekari framlengingar á greiðslum.

Rökstyðja skal þörf fyrir lengingu á fæðingarorlofi samkvæmt ákvæði þessu með vottorði læknis. Tryggingayfirlæknir skal meta læknisfræðilega hvort lenging fæðingarorlofs er nauðsynleg.


10. gr.
Alvarlegur sjúkleiki barns.
Heimilt er að framlengja sameiginlegan rétt foreldra til fæðingarorlofs í allt að þrjá mánuði ef um er að ræða alvarlegan sjúkleika barns sem krefst nánari umönnunar foreldris.

Rökstyðja skal þörf fyrir lengingu á fæðingarorlofi samkvæmt ákvæði þessu með vottorði læknis. Tryggingayfirlæknir skal meta læknisfræðilega hvort lenging fæðingarorlofs er nauðsynleg.

Greiðslur samkvæmt þessu ákvæði geta átt sér stað í framhaldi af allt að fjögurra mánaða framlengingu fæðingarorlofs vegna barns sem dvelur á sjúkrahúsi lengur en fjóra mánuði eða í framhaldi af útskrift.


11. gr.
Veikindi móður í tengslum við fæðingu.
Heimilt er að framlengja fæðingarorlof móður um allt að tvo mánuði vegna alvarlegra veikinda hennar í tengslum við fæðingu, enda sé hún að mati lækna ófær um að annast barn sitt.

Rökstyðja skal þörf fyrir lengingu á fæðingarorlofi samkvæmt ákvæði þessu með vottorði læknis. Tryggingayfirlæknir skal meta læknisfræðilega hvort lenging fæðingarorlofs er nauðsynleg.


III. KAFLI
Greiðsla fæðingarstyrks.
12. gr.
Lögheimilisskilyrði.
Rétt til fæðingarstyrks á foreldri sem er utan vinnumarkaðar, í minna en 25% starfi eða í námi að því tilskildu að foreldrið hafi átt lögheimili hér við fæðingu barns, ættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur og síðustu 12 mánuðina þar á undan. Skilyrði um lögheimili er í samræmi við það búsetuskilyrði sem sett er fyrir rétti til að teljast tryggður samkvæmt lögum um almannatryggingar.

Til þess að heimilt sé að taka til greina búsetu í öðrum ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins á þeim tíma sem um ræðir í 1. mgr. skal foreldri afhenda Tryggingastofnun ríkisins staðfesta yfirlýsingu (E-104) sem sýnir tryggingatímabil er foreldri hefur lokið samkvæmt þeirri löggjöf sem það heyrði undir.

Hafi verið gerður samningur við annað ríki sem nær til greiðslna vegna fæðingar barns, ættleiðingar eða töku barns í varanlegt fóstur skal meta búsetu foreldris í því ríki samkvæmt ákvæðum samningsins.


13. gr.
Undanþágur frá lögheimilisskilyrði.
Tryggingastofnun ríkisins er, þrátt fyrir 12. gr., heimilt á grundvelli umsóknar að greiða fæðingarstyrk til foreldris sem hefur flutt lögheimili sitt tímabundið vegna náms erlendis, enda hafi foreldri átt lögheimili hér á landi samfellt í a.m.k. fimm ár fyrir flutning.

Skilyrði samkvæmt ákvæði þessu er að fyrir liggi yfirlýsing frá almannatryggingum í búsetulandi um að foreldri eigi ekki rétt á greiðslum vegna fæðingar, ættleiðingar eða töku barns í varanlegt fóstur í því ríki.

Ef fyrir hendi er réttur úr almannatryggingum í búsetulandi sem er lakari en sá réttur sem námsmaður á rétt til hér á landi er Tryggingastofnun ríkisins heimilt, þrátt fyrir skilyrði 2. mgr., að greiða mismun sem því nemur.


14. gr.
Fullt nám.
Fullt nám í skilningi laga um fæðingar- og foreldraorlof og reglugerðar þessarar telst vera 75–100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns, ættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur. Sama á við um 75–100% nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Heimilt er að meta sambærilegt nám í öðrum ríkjum, enda uppfylli foreldri lögheimilisskilyrði skv. 12. gr. eða undanþáguákvæði 13. gr. Einstök námskeið teljast ekki til fulls náms.

Leggja skal fram staðfestingu frá viðkomandi skóla og er Tryggingastofnun ríkisins heimilt að krefjast að sýnt sé fram á námsárangur.

Verklegt nám sem stundað hefur verið á Íslandi á síðustu sex mánuðum fyrir fæðingu barns, ættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur skal meta sem fullt nám veiti það ekki rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði skv. II. kafla.

Heimilt er að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þrátt fyrir að skilyrðinu um samfellt nám í a.m.k. sex mánuði fyrir fæðingu barns, ættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur sé ekki fullnægt hafi foreldri verið í samfelldu starfi í a.m.k. sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fram til þess að námið hófst.


15. gr.
Tilhögun greiðslna.
Greiðslur fæðingarstyrks til foreldris skulu inntar af hendi eftir á fyrir undanfarandi mánuð, fyrsta virkan dag hvers mánaðar. Fæðingarstyrkur til foreldra utan vinnumarkaðar og í minna en 25% starfi skal vera 33.689 kr. á mánuði en fæðingarstyrkur til foreldris í fullu námi skal vera 76.049 kr. á mánuði.

Greiðslur fæðingarstyrks vegna fæðingar geta í fyrsta lagi hafist fyrsta virkan dag þess mánaðar sem fer á eftir fæðingarmánuði barns og er þá greitt fyrir fæðingarmánuð barns óháð hvaða mánaðardag barn fæddist.

Greiðsla fæðingarstyrks vegna ættleiðingar eða töku barns í varanlegt fóstur getur í fyrsta lagi hafist fyrsta virkan dag þess mánaðar sem fer á eftir þeim mánuði er barn kemur inn á heimili eða þeim mánuði sem ferð foreldra hefst til að sækja barnið til annars lands.

Foreldri getur ákveðið að greiðslur hefjist síðar en greiðslum þarf að ljúka áður en barnið nær 18 mánaða aldri er rétturinn fellur sjálfkrafa niður. Óheimilt er að skipta greiðslutímabili fæðingarstyrks yfir á fleiri en eitt tímabil.


16. gr.
Fjölburafæðingar.
Þegar um er að ræða fjölburafæðingu skal framlengja sameiginlegan rétt foreldra til greiðslu fæðingarstyrks um þrjá mánuði fyrir hvert barn umfram eitt, enda fæðist tvö eða fleiri börn á lífi.

Þegar foreldrar ættleiða fleiri börn en eitt í einu eða taka fleiri en eitt barn í varanlegt fóstur á sama tíma skal framlengja sameiginlegan rétt þeirra til fæðingarstyrks um þrjá mánuði fyrir hvert barn umfram eitt.


17. gr.
Lengri sjúkrahúsdvöl barns en sjö dagar.
Þurfi barn að dvelja á sjúkrahúsi lengur en sjö daga í beinu framhaldi af fæðingu er heimilt að framlengja sameiginlegan rétt foreldra til fæðingarstyrks um þann dagafjölda sem barn dvelur á sjúkrahúsi fyrir fyrstu heimkomu. Þó má aldrei lengja réttinn til fæðingarstyrks af þessari ástæðu lengur en um fjóra mánuði. Heimild þessi á einnig við þegar barn fæðist fyrir áætlaðan fæðingardag og þarf að dvelja lengur á sjúkrahúsi af þeim sökum.

Upphaf greiðslu fæðingarstyrks miðast við fæðingardag barns og lok hennar við fyrstu heimkomu barns eftir fæðingu. Ef um fjölburafæðingu er að ræða gildir dvalartími þess barns sem lengur/lengst dvelst á sjúkrahúsinu. Ef barn innritast að nýju á sjúkrahús veitir það ekki rétt til frekari framlengingar á greiðslum.

Rökstyðja skal þörf fyrir lengingu á rétti til fæðingarstyrks samkvæmt ákvæði þessu með vottorði læknis. Tryggingayfirlæknir skal meta læknisfræðilega hvort lenging á rétti til fæðingarstyrks er nauðsynleg.


18. gr.
Alvarlegur sjúkleiki barns.
Heimilt er að framlengja sameiginlegan rétt foreldra til fæðingarstyrks í allt að þrjá mánuði ef um er að ræða alvarlegan sjúkleika barns sem krefst nánari umönnunar foreldris.

Rökstyðja skal þörf fyrir lengingu á rétti til fæðingarstyrks samkvæmt ákvæði þessu með vottorði læknis. Tryggingayfirlæknir skal meta læknisfræðilega hvort lenging á rétti til fæðingarstyrks er nauðsynleg.

Greiðslur samkvæmt ákvæði þessu geta átt sér stað í framhaldi af allt að fjögurra mánaða framlengingu réttar til fæðingarstyrks vegna barns sem dvelur á sjúkrahúsi lengur en fjóra mánuði eða í framhaldi af útskrift.


19. gr.
Veikindi móður í tengslum við fæðingu.
Heimilt er að framlengja rétt móður til fæðingarstyrks um allt að tvo mánuði vegna alvarlegra veikinda hennar í tengslum við fæðingu.

Rökstyðja skal þörf fyrir lengingu á rétti til fæðingarstyrks samkvæmt ákvæði þessu með vottorði læknis. Tryggingayfirlæknir skal meta læknisfræðilega hvort lenging á rétti til fæðingarstyrks er nauðsynleg.


IV. KAFLI
Sameiginleg ákvæði.
20. gr.
Ósamrýmanleg réttindi.
Greiðslur frá öðrum ríkjum vegna sömu fæðingar og fyrir sama tímabil koma til frádráttar við greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks.

Hafi foreldri verið búsett erlendis og öðlast þar rétt til greiðslna í tengslum við fæðingu, ættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur skulu fylgja með umsókn til Tryggingastofnunar ríkisins gögn sem staðfesta hvort foreldri muni njóta greiðslna í því ríki vegna sömu fæðingar, ættleiðingar eða töku barns í varanlegt fóstur. Njóti foreldri greiðslna í öðru ríki skulu jafnframt koma fram fjárhæðir þeirra og greiðslutímabil.


21. gr.
Kæruleiðir.
Kæra vegna ágreiningsefna sem kunna að rísa á grundvelli reglugerðar þessarar skal berast úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála skriflega innan þriggja mánaða frá því aðila máls var tilkynnt um ákvörðun.


V. KAFLI
Fjármál og eftirlit.
22. gr.
Fæðingarorlofssjóður.
Fæðingarorlofssjóður skal fjármagnaður með tryggingagjaldi, sbr. lög um tryggingagjald, auk vaxta af innstæðufé sjóðsins.

Fæðingarorlofssjóður skal vera í vörslu Tryggingastofnunar ríkisins sem sér um reikningshald, daglega afgreiðslu og ávöxtun sjóðsins. Stofnunin skal auk þess sjá um afgreiðslu fæðingarstyrks. Skal Fæðingarorlofssjóður vera fjárhagslega aðskilinn frá öðrum rekstrarþáttum stofnunarinnar.

Félagsmálaráðherra hefur fjárhagslegt eftirlit með Fæðingarorlofssjóði og skal gæta þess að sjóðurinn hafi nægilegt laust fé til að standa við skuldbindingar sínar.

Kostnaður af rekstri sjóðsins greiðist af tekjum hans. Tryggingastofnun ríkisins fær greitt samkvæmt samningi við félagsmálaráðuneytið fyrir þá þjónustu sem stofnunin innir af hendi vegna Fæðingarorlofssjóðs.

Reikningar Fæðingarorlofssjóðs skulu endurskoðaðir af Ríkisendurskoðun og birtir ár hvert í Lögbirtingablaðinu.


23. gr.
Fjárlagagerð.
Við undirbúning fjárlaga ár hvert skal Tryggingastofnun ríkisins gera fjárhagsáætlun fyrir viðkomandi rekstrarár Fæðingarorlofssjóðs sem félagsmálaráðherra leggur fyrir fjármálaráðherra.

Í fjárhagsáætluninni skulu meðal annars koma fram áætlaðar greiðslur til foreldra sem njóta réttar í fæðingarorlofi ásamt áætluðum rekstrargjöldum vegna umsýslu Fæðingarorlofssjóðsins.


24. gr.
Upplýsingagjöf til foreldra.
Tryggingastofnun ríkisins skal sjá til þess að allar upplýsingar um réttindi foreldra til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og til greiðslu fæðingarstyrks verði aðgengilegar þeim sem á þurfa að halda.


VI. KAFLI
Gildistaka.
25. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 35. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, öðlast gildi 1. janúar 2001.


Félagsmálaráðuneytinu, 6. desember 2000.

Páll Pétursson.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica