Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

169/2015

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 168/2011 um skilyrði og kröfur vegna útgáfu heilbrigðisvottorða við markaðssetningu lagareldisdýra, afurða þeirra og innflutning þeirra inn á EES-svæðið og um skrá yfir tegundir smitferja. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samning­inn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 163/2014, frá 26. september 2014, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 25/2014 frá 13. janúar 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1251/2008 að því er varðar færsluna fyrir Kanada í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf þaðan sem leyft er að flytja tiltekin lagardýr inn til Sambandsins. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, frá 30. október 2014, bls. 51.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995, um matvæli, lög nr. 55/1998, um sjávarafurðir, lög nr. 71/2008, um fiskeldi, lög nr. 54/1990, um innflutning dýra, lög nr. 25/1993, um dýra­sjúkdóma og varnir gegn þeim og lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum, nema annað sé ákveðið samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum.

3. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum eða fangelsi. Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995, um matvæli, laga nr. 55/1998, um sjávarafurðir, laga nr. 71/2008, um fiskeldi, laga nr. 54/1990, um innflutning dýra, laga nr. 25/1993, um dýra­sjúkdóma og varnir gegn þeim og laga nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 55/1998, um sjávarafurðir, lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum.

5. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. febrúar 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica