Félagsmálaráðuneyti

222/2000

Reglugerð um fráveitu í Bessastaðahreppi. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um fráveitu í Bessastaðahreppi.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um fráveitu í Bessastaðahreppi.

I. KAFLI

Um fráveituna.

2. gr.

Bessastaðahreppur starfrækir fráveitu í sveitarfélaginu, sveitarsjóður kostar rekstur hennar og framkvæmdir við hana. Sveitarstjórn ákveður framkvæmdir við fráveitu og veitir árlega fé á fjárhagsáætlun sveitarsjóðs til reksturs og framkvæmda við hana.

Tæknideild sveitarfélagsins fer með umsjón, hönnun, framkvæmdir og rekstur fráveitunnar í umboði sveitarstjórnar.

3. gr.

Fráveitan veitir fráveituvatni sem getur verið húsaskólp, iðnaðarskólp, ofanvatn, frárennslisvatn hitaveitu og ræsisvatn um fráveitulagnir frá byggð til viðtaka.

Einföld fráveita veitir skólpi og ofanvatni saman í einni fráveitulögn en tvöföld fráveita veitir skólpi og ofanvatni í tveimur aðskildum samliggjandi fráveitulögnum.

Sveitarsjóður á allar holræsalagnir fráveitu, útrásir, stofnræsi, götuholræsi, ofanvatnsræsi í götum og opnum svæðum og götufráræsi að fráræsum húseigna. Ennfremur allan fráveitubúnað, brunna, niðurföll, hverfisrotþrær, dælustöðvar og hreinsistöðvar.

4. gr.

Þar sem fráveita sveitarfélagsins nær til skal húseigendum séð fyrir götufráræsi frá götuholræsi að lóðamörkum húseigna. Þar sem fráveitan liggur um lóðir skal séð fyrir tengigrein á holræsalögn. Tæknideild sveitarfélagsins ákveður legu götuholræsa og tengigreina.

5. gr.

Húseigendum sem eiga húseignir við vegi eða opin svæði þar sem fráveita sveitarfélagsins liggur er skylt að leggja á sinn kostnað fráræsi frá húseignum sínum og tengja þau við fráveituna. Þegar lögð er tvöföld fráveita skulu húseigendur halda skólpi og ofanvatni aðskildu í tvöfaldri fráveitulögn og tengja hana tvöfaldri fráveitu sveitarfélagsins. Að öðru leyti er bent á ákvæði reglugerðar um fráveitur og skólp nr. 798/1999.

6. gr.

Þegar ekki er unnt að ná nægilegum halla á fráræsi húseignar að fráveitu sveitarfélagsins skal húseigandi leiða fráveituvatn frá húseigninni að safnbrunni með sjálfvirkum dælubúnaði sem dælir fráveituvatninu að brunni þannig staðsettum að hægt sé að veita fráveituvatni frá honum í fráveitu sveitarfélagsins.

7. gr.

Þar sem fráveita sveitarfélagsins nær ekki til skulu húseigendur leiða fráveituvatn frá fráræsum húseigna um rotþrær og siturleiðslur til viðtaka. Bessastaðahreppur kostar niðursetningu og frágang rotþróar og siturlagna en húseigandi leggur til viðurkennda rotþró sem samþykkt er af heilbrigðisfulltrúa. Húseigandi annast allt viðhald rotþróar. Sveitarfélagið annast allt viðhald siturlagna.

Þegar fráveita sveitarfélagsins hefur verið lögð skulu húseigendur kosta og tengja fráræsi húseigna við hana.

8. gr.

Þegar tengja skal fráræsi húseigna við fráveitu sveitarfélagsins eða veita fráveituvatni frá þeim um rotþró sé þess ekki kostur að tengja fráræsislögn frá húseign við fráveitu skal sækja um það til byggingareftirlits sveitarfélagsins á þar til gerðum eyðublöðum sem þar eru látin í té. Umsóknir skulu undirritaðar af húseigendum eða fullgildum umboðsmönnum þeirra ásamt pípulagningameistara þeim sem verkið á að vinna. Umsóknum skulu fylgja teikningar af fráveitulögnum húsa og lóða og fráræsum frá húseignum sem tengja á fráveitu sveitarfélagsins.

Umsóknum um rotþrær skulu fylgja teikningar sem sýni gerð þeirra og staðsetningu og siturleiðslur að viðtaka auk teikninga af fráveitulögnum húsa og lóða. Rotþró skal valinn þannig staður að auðvelt sé að komast að henni með tæki til hreinsunar, sbr. 12. gr.

9. gr.

Teikningar skulu fylgja almennum reglum um hönnun fráveitulagna í húsum, sbr. byggingarreglugerð og byggingarskilmála. Allt efni skal standast kröfur um efni og vinnu sem gerðar eru á hverjum tíma.

10. gr.

Byggingareftirlit sveitarfélagsins skal hafa eftirlit með því að fráveitulagnir frá húseignum séu lagðar samkvæmt samþykktum teikningum. Áður en lagnir eru huldar skal einnig taka út og viðurkenna fráræsi frá húseignum og tengingar þeirra við fráveitu sveitarfélagsins eða rotþrær.

11. gr.

Eigendum fasteigna er skylt að hlíta því að lagnir fráveitu sveitarfélagsins séu lagðar um lóðir þeirra eða lönd og fram fari á þeim nauðsynlegt viðhald. Bessastaðahreppi er skylt að halda raski í lágmarki og ganga snyrtilega um og færa allt til fyrra horfs eins og við verður komið.

12. gr.

Húseigendum er skylt að halda vel við fráveitulögnum húseigna sinna og sjá um hreinsun á fráræsum og gæta þess að þau stíflist ekki.

Óheimilt er að láta í fráveitu sveitarfélagsins hvers kyns olíur, bensín, lífræn leysiefni eða annað það sem skemmt getur eða truflað rekstur fráveitukerfisins. Um mengunarvarnir fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, með síðari breytingum, og reglugerða.

13. gr.

Þar sem hætta er á að fráveituvatn frá fráveitu sveitarfélagsins flæði til baka um fráræsislagnir frá húseigendum vegna vatnsborðsriss af völdum ofanvatns eða hárrar sjávarstöðu skulu húseigendur koma fyrir sjálfvirkum flóðlokum við gólfniðurföll.

14. gr.

Um notkun og hreinsun rotþróa í Bessastaðahreppi gildir sérstök samþykkt sveitarstjórnar, nr. 67/1985, staðfest af ráðherra í samræmi við ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.

II. KAFLI

Um fráveitugjald.

15. gr.

Af öllum húseignum í Bessastaðahreppi skal greiða árlega fráveitugjald. Fráveitugjaldi skal varið til þess að standa straum af kostnaði við fráveitu sveitarfélagsins.

16. gr.

Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa, samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum.

Fráveitugjald skal nema 0,09% af álagningarstofni. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald.

Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.

17. gr.

Fráveitugjald greiðist af skráðum eiganda fasteignar ef um eignarlóð er að ræða en af leigutaka ef um leigulóð er að ræða og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Fráveitugjaldið má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Nýtur fráveitugjaldið lögveðréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

18. gr.

Við álagningu árlegs fráveitugjalds getur sveitarstjórn með einfaldri samþykkt sinni nýtt sér heimild í 2. mgr. 87. gr. vatnalaganna, sbr. lög nr. 137/1995, um niðurfellingu eða lækkun til tekjulítilla elli- og örorkulífeyrisþega.

19. gr.

Brot á reglugerð þessari varðar sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt lögum. Mál varðandi brot á reglugerð þessari skal farið með að hætti opinberra mála.

Reglugerð þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Bessastaðahrepps og staðfestist hér með skv. X. kafla vatnalaga nr. 15/1923 til þess að öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 29. mars 2000.

F. h. r.

Húnbogi Þorsteinsson.

Sesselja Árnadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica