Félagsmálaráðuneyti

558/1987

Reglugerð um holræsi í Búlandshreppi, Suður-Múlasýslu. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um holræsi í Búlandshreppi, Suður-Múlasýslu.

 

1 gr.

            Þegar Búlandshreppur hefur látið leggja holræsi í veg, götu eða annað opið svæði eða þar sem hreppurinn hefur tekið að sér viðhald og endurnýjun holræsa. er þeim húseigend­um, er þar eiga húseignir að eða í námunda við og til holræsa geta náð, skylt að leggja á sinn kostnað holræsi frá húsinu, er flytji allt skólp frá því út í aðalræsið. Regnvatn af húsum og lóðum skal einnig, ef unnt er, leiða í ruslið eða í sérstakt holræsi fyrir ofanjarðarvatn. ef gert er, samkvæmt fyrirmælum byggingarfulltrúa. Vanræki einhver að láta gera nýtt holræsi eða endurnýja eldra, innan hæfilegs frests, sem byggingarfulltrúi ákveður. getur hreppurinn látið vinna verkið a kostnað húseiganda.

 

2.gr

            Búlandshreppur lætur leggja holræsastúta út frá aðalræsi í nýjum götum. Skulu stútar þessir ná út fyrir götu að lóðamörkum húsa. Heimlagnir og viðhald þeirra eru á kostnað húseiganda. Við raðhús eða fjölbýlishús skal um holræsastúta fara eftir nánari skilmálum um lóðarúthlutun.

 

3.gr.

Sveitarstjóri og byggingarfulltrúi, undir yfirstjórn hreppsnefndar fara með stjórn framkvæmda, er holræsakerfi sveitarfélagsins varðar. Heimilt er sveitarstjóra að fela sérstökum umsjónarmanni yfirstjórn holræsakerfisins. Áður en húseigandi byrjar að leggja holræsi sitt skal fá samþykki umsjónarmanns þar til. Skal húseigandi leggja fram teikningar af frárennsliskerfi sínu, ef krafist verður. Skylt er húseiganda að hlýða fyrirmælum umsjónarmanns um allt það, er að tilhögun og lagningu ræsanna lýtur, enda hafi starfsmenn hreppsins ávallt eftirlit með því, að vel og örugglega sé frá öllu gengið.

 

4. gr.

            Allt efni, sem notað er til holræsagerðar, skal standast kröfur byggingarsamþykktar, en auk þess getur byggingarnefnd sett reglur um sérstaka hreinsibrunna á holræsakerfi húseiganda, þar sem ástæða þykir til.

 

5. gr.

            Bannað er að láta renna í holræsakerfið sýrur, olíur eða önnur efni, sem valdið geta skemmdum á holræsakerfinu eða varanlegri mengun.

 

6. gr.

            Kostnaður við aðalholræsakerfið greiðist úr sveitarsjóði, en til að standast þann kostnað er húseigendum, sem hús eiga við veg, götu eða svæði, þar sem holræsi er lagt í, skylt að greiða árlega holræsagjald, sem nemur 0,2% af hinu opinbera fasteignamati húss og lóðar eins og það er reiknað á hverjum tíma því aldrei lægra en kr. 900,00. Lámarksgjald þetta skal endurskoða 1. janúar ár hvert og breytist í sama hlutfalli og fasteignamat í Búlandshreppi. Undanþága frá greiðslu hins almenna fasteignaskatts leiðir ekki til undanþágu frá greiðslu holræsagjald. Gjald þetta getur hreppsnefnd lækkað eða hækkað um allt að 50% án þess að leita þurfi staðfestingar ráðuneytis.

 

7. gr.

            Holræsagjaldið greiðist af húseiganda og er hann einn ábyrgur fyrir greiðslu þess gagnvart sveitarsjóði. Kröfur, sem sveitarsjóður kann að öðlast samkvæmt reglugerð þessari, má taka lögtaki á kostnað gjaldanda og eru gjöld þessi tryggð með lögveði í húseigninni í næstu 2 ár eftir gjalddaga, með fasteignamatsveði fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Gjalddagar holræsagjalda eru hinir sömu og annarra fasteignagjalda ár hvert.

 

8. gr.

            Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt

lögum. Með má1 út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

 

            Reglugerð þessi sem samin er og samþykkt af hreppsnefnd Búlandshrepps í

S.­Múlasýslu staðfestist hér með samkvæmt vatnalögum nr. 15 frá 20. júní 1923 til þess að öðlast gildi þegar í stað.

 

Félagsmálaráðuneytið, 4. desember 1987.

 

F.h.r.

Hallgrímur Dalberg.

Hólmfríður Snæbjörnsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica