1657/2025
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 385/2015 um gildistöku framseldra reglugerða framkvæmdastjórnarinnar (esb) nr. 574/2014 um breytingu á iii. viðauka og nr. 568/2014 um breytingu á v. viðauka við reglugerð evrópuþingsins og ráðsins (esb) nr. 305/2011 að því er varðar mat á nothæfi byggingarvara, sannprófun á stöðugleika þess, og fyrirmyndina sem skal nota við gerð yfirlýsingar um nothæfi byggingarvara.
1. gr.
Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 3. tölul., svohljóðandi:
- Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2769 frá 30. maí 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 305/2011 með því að mæla fyrir um viðeigandi kerfi til að meta og sannprófa stöðugleika nothæfis byggingarvara með tilliti til mikilvægra eiginleika þeirra að því er varðar umhverfislega sjálfbærni og um breytingu á þeirri reglugerð að því er varðar mat og sannprófun á stöðugleika nothæfis byggingarvara á grundvelli líkanagerðar. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 28/2025, 30. apríl 2025, bls. 115-118.
2. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5. tölul. 7. gr. laga nr. 114/2014 um byggingarvörur, öðlast þegar gildi.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 19. desember 2025.
B deild - Útgáfudagur: 12. janúar 2026