Félagsmálaráðuneyti

347/1974

Reglugerð um holræsagjöld í Kópavogi - Brottfallin

REGLUGERÐ

um holræsagjöld í Kópavogi.

 

1. gr.

            Hverjum þeim, sem á hús eða húshluta í Kópavogi, á lóð eða leigir 1óð í bænum við götu eða opið svæði, sem holræsi hefur verið lagt í, ber að greiða árlegt holræsa­gjald til bæjarsjóðs Kópavogs.

            Upphæð holræsagjaldsins skal vera 0.22% af fasteignamati húsa og 1óða skv. lögum um fasteignamat og fasteignaskráningu nr. 28 29. apríl 1963. Upphæð hol­ræsagjaldsins skal þó aldrei vera lægri, en svarar kr. 8.00 á hvern rúmmetra í íbúðarhúsnæði og kr. 5.50 á hvern rúmmetra af öðru húsnæði. A sama hátt skal upphæð holræsagjaldsins aldrei vera hærri en svarar kr. 10.00 á hvern rúmmetra af hvaða húsnæði sem er. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki holræsagjald.

            Lágmarksupphæð holræsagjalds fyrir hverja gjaldskylda fasteign skal aldrei vera lægri en kr. 1100.00.

            Nú er fasteign, sem greiða ber af holræsagjald eigi virt fasteignavirðingu og skal þá greiða holræsagjald skv. samþykktum uppdráttum.

            Þó skal aldrei reikna holræsagjöld af húsi það ár, sem bygging þess hefst. Holræsagjaldið er miðað við byggingarvísitölu 1290 stig og breytist einu sinni á ári til samræmis við byggingarvísitöluna, eins og hún er í árslok hverju sinni. Hækkanir samkvæmt þessari málsgrein mega þó ekki vera meiri en 50% án stað­festingar ráðuneytis.

 

2. gr.

            Holræsagjald greiðist af hús- og íbúðareiganda, lóðareiganda, ef um eignarlóð er að ræða, en af leigutaka, ef um leigulóð er að ræða, og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Gjaldið hefur lögtaksrétt og er tryggt með lögveðrétti i 1óð og mannvirkjum næstu 2 ár eftir gjalddaga þess, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

 

3. gr.

            Um gjalddaga og innheimtu holræsagjalds fer með lama hætti og um fasteigna­skatt, enda skulu gjöld þessi innheimt sameiginlega.

            Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af bæjarstjórn Kópavogskaupstaðar, staðfestist hér með samkvæmt vatnalögum nr. 15 20. júní 1923 til þess að öðlast gildi þegar í stað.

 

Félagsmálaráðuneytið, 6. nóvember 1974

 

F. h. r.

Hallgrímur Dalberg.

Guðmundur Karl Jónsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica