Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

1649/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað "806.700 kr." í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 843.804 kr.
  2. Í stað "647.376 kr." í 1. málsl. 3. mgr. kemur: 683.628 kr.

2. gr.

2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Ef heimilismaður er á aldrinum 18-25 ára og í námi eða starfsþjálfun skulu aðrir heimilismenn þó ekki teljast hafa fjárhagslegt hagræði af sambýli eða samlögum við hann.

3. gr.

Í stað "3.141.270 kr." í 11. gr. reglugerðarinnar kemur: 3.317.181 kr.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað "333.258 kr." í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 351.920 kr.
  2. Í stað "265.044 kr." í 2. málsl. 2. mgr. kemur: 279.886 kr.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 6. mgr. 9. gr., sbr. 14. gr., laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, sbr. einnig 70. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2022. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 708/2021, um breytingu á reglugerð nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri.

Félagsmálaráðuneytinu, 29. desember 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.