Félagsmálaráðuneyti

542/1988

Reglugerð um holræsi og holræsagjöld á Laugarbakka, Ytri-Torfustaðahreppi í V-Húnavatnssýslu. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um holræsi og holræsagjöld á Laugarbakka, Ytri-Torfustaðahreppi í

V-Húnavatnssýslu.

 

1. gr.

            Þegar hreppurinn hefur látið leggja holræsi í veg, götu eða annað opið svæði, eða þar sem hreppurinn hefur tekið að sér viðhald og endurnýjun eldri holræsa, er þeim húseigendum, er þar eiga hús að eða í námunda við, skylt að leggja á sinn kostnað ræsi frá húsinu, er flytji allt skólp frá því út í aðalræsi. Regnvatn af húsum og lóðum skal einnig, eftir því sem unnt er, leiða í ræsi. Vanræki einhver að láta gera holræsi (frá húsi að göturæsi) innan hæfilegs frests, getur hreppsnefnd látið vinna verkið á hans kostnað. Sama gildir, ef húseigandi vanrækir viðhald heimæðar.

 

2. gr.

            Öll framkvæmdaþörf, sem holræsakerfi staðarins varða, svo sem: viðhald, endurbætur, viðauka og umsjón alla, annast hreppsnefnd, eða þeir menn, sem hreppsnefnd felur það, undir hennar umsjón.

            Er engum heimilt að leggja ræsi í aðalræsi nema með leyfi þessara aðila, og er mönnum skylt að hlíta í öllu fyrirmælum þeirra um gerð og legu ræsis og annað þess háttar, er máli skiptir í sambandi við það.

            Sveitarstjóri annast reikningshald og fjárreiður holræsagerðarinnar.

 

3. gr.

            Kostnaður allur við holræsakerfið greiðist úr sveitarsjóði. Til að standast þann kostnað ber hverjum húseiganda, sem tengir heimæð við aðalæð, að greiða tengigjald, samkvæmt ákvörðun hreppsnefndar. Einnig ber hverjum húseiganda, sem á hús við veg, götu eða opið svæði, þar sem holræsi er lagt í, að greiða holræsagjald til hreppsins, sem miðast við

fasteignamat húss og lóðar 0,15% samkvæmt núverandi fasteignamati, þó aldrei lægra en 2.300.00.

            Tengigjald einbýlishúss er kr. 3.500.00.

            Tengigjöld í fjölbýlishúsi er kr. 3.500.00 fyrir fyrstu íbúð, en kr. 2.300.00 á íbúð umfram þá fyrstu.

            Tengigjöld fyrir atvinnuhúsnæði er kr. 7.000.00.

            Gjöld þessi eru miðuð við byggingarvísitölu 248 stig og breytast samkvæmt henni.

            Gjöld þessi getur hreppsnefnd hækkað eða lækkað eftir aðstæðum um 50% án samþykkis ráðuneytis.

 

4. gr.

            Húseigandi ber ábyrgð á greiðslu holræsagjalds gagnvart hreppsnefnd. Kröfur sem hreppsnefndin kann að öðlast samkv. 1. og 3. gr., má taka lögtaki á kostnað gjaldanda og eru gjöld þessi tryggð með lögveði í húseigninni í tvö næstu ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

            Gjalddagi holræsagjalds er 15. janúar ár hvert.

 

5. gr.

            Brot á reglugerð þessari varða sektum, nema þyngri refsing liggi við samkv. lögum. Mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið með að hætti opinberra mála.

            Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af hreppsnefnd Ytri-Torfustaðahrepps í V-­Húnavatnssýslu staðfestist hér með samkvæmt vatnalögum nr. 15 20. júní 1923 til þess að öðlast gildi 1. janúar 1989.

 

Félagsmálaráðuneytið, 15. desember 1988.

 

F. h. r.

Berglind Ásgeirsdóttir.

Hólmfríður Snæbjörnsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica