Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

1640/2025

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á viðauka reglugerðarinnar.

Eftirfarandi starfsemi er bætt við í stafrófsröð:

Dýragæsla.
Dýralæknastofa.
Garðaúðun.
Gæludýraverslun.
Heilsugæslustöð.
Heilsuræktarstöð.
Hestaleiga og/eða reiðskóli.
Hundahótel.
Húðflúrstofa og stofa þar sem fram fer húðgötun, húðrof og fegrunarflúr.
Íþróttahús.
Leiksvæði, önnur en leiksvæði við fjöleignarhús með sameiginlegu svæði.
Meðhöndlun asbests.
Niðurrif bifreiða- og bílapartasala.
Smurstöð.
Starfsmannabúðir.
Stofa þar sem gerðar eru aðgerðir, svo sem læknastofa og fótaaðgerðarstofa.

2. gr. Lagastoð, gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. mgr. 8. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, sbr. 4. gr. og 1. og 20. tölul. 5. gr. laganna. Reglugerðin er sett að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga um hlutverk heilbrigðisnefnda við framkvæmd reglugerðar þessarar.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 19. desember 2025.

Jóhann Páll Jóhannsson.

Stefán Guðmundsson.

B deild - Útgáfudagur: 9. janúar 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica