Atvinnuvegaráðuneyti

1634/2025

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 200/2023 um veiðar á austur-atlantshafs bláuggatúnfiski.

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Leyfilegur heildarafli.

Á árinu 2026 er íslenskum skipum heimilt að veiða alls 253,14 tonn af bláuggatúnfiski miðað við afla upp úr sjó. Af þeim heimildum er 250 tonnum úthlutað til veiða með línu og 3,14 tonnum vegna áætlaðs meðafla íslenskra skipa á bláuggatúnfiski.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 14. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997, ákvæðum 3., 4., 6., 7., 8., 18. og 19. gr. laga um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, nr. 151/1996, og ákvæðum 16. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 22. desember 2025.

Hanna Katrín Friðriksson.

Kolbeinn Árnason.

B deild - Útgáfudagur: 7. janúar 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica