Sjávarútvegsráðuneyti

162/2002

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu suðvestur af Malarrifi. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 3. mars 2002 eru allar veiðar með fiskibotnvörpu bannaðar suðvestur af Malarrifi á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:


1. 64° 2970 N – 24° 3300 V
2. 64° 3080 N – 24° 2640 V
3. 64° 3000 N – 24° 2560 V
4. 64° 2860 N – 24° 3200 V


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 1. mars 2002.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica