Félagsmálaráðuneyti

192/1988

Reglugerð um holræsi í Ólafsfjarðarkaupstað - Brottfallin

REGLUGERÐ

um holræsi í Ólafsfjarðarkaupstað

 

1. gr.

            Þegar Ólafsfjarðarkaupstaður hefur látið leggja holræsi í veg, götu eða annað opið svæði eða þar sem bærinn hefur tekið að sér viðhald og endurnýjun holræsa, er húseig­endum, sem þar eiga húseignir og til holræsa geta náð, skylt að leggja á sinn kostnað ræsi frá húsinu er flytji allt skólp frá því út í aðalræsið.

            Regnvatn af húsum og lóðum skal einnig, ef unnt er, leiða í ræsið eða í sérstakt regnvatnsræsi, ef gert er.

            Vanræki einhver að láta gera holræsi innan hæfilegs frests, sem bæjarstjóri ákveður, getur bærinn látið vinna verkið á kostnað húseiganda.

 

2. gr.

            Ólafsfjarðarkaupstaður lætur leggja holræsastúta úr frá aðalræsi í nýjum götum, sem hann lætur byggja. Skulu stútar þessir ná út fyrir götu að lóðarmörkum húsa.

            Við raðhús og fjölbýlishús skal um holræsastúta fara eftir nánari skilmálum um lóðarúthlutun. Séu gerðir sérstakir holræsastofnar fyrir regnvatn er húseigendum skylt að hafa sérstakt frárennsliskerfi fyrir regnvatn og tengja það við lóðarmörk sín skv. nánari fyrirmælum bæjartæknifræðings eða bæjarstjóra. Verði ágreiningur um túlkun þessarar greinar sker bæjarráð úr honum.

 

3. gr.

            Bæjarstjóri og bæjartæknifræðingur, undir yfirstjórn bæjarráðs, fara með stjórn framkvæmda er varða holræsakerfi bæjarins svo sem viðhald, endurbætur. viðauka o~ umsjón alla. Bæjarráði er heimilt að fela sérstökum umsjónarmanni yfirumsjón með holræsakerfinu.

            Húseigandi skal leggja fram teikningu af frárennsliskerfi sínu. Húseiganda er skylt að hlýða fyrirmælum bæjartæknifræðings eða umsjónarmanns í öllu því sem að tilhögun og lagningu ræsanna lýtur, enda hafi starfsmenn bæjarins ávallt eftirlit með því að vel og örugglega sé frá öllu gengið.

            Áður en húseigandi byrjar að leggja ræsi sitt skal hann skýra bæjartæknifræðingi eða umsjónarmanni frá því og fá samþykki fyrir framkvæmdinni.

 

4. gr.

            Allt efni til holræsagerðar skal standast þær kröfur, sem til slíks eru gerðar í byggingasamþykkt, en auk þess getur bygginganefnd sett reglur um holræsakerfi, t.d. ef um nýjungar á því sviði er að ræða.

            Bæjartæknifræðingur getur gert kröfur um sérstaka hreinsibrunna á holræsakerfi húseiganda, þar sem ástæða þykir til.

 

5. gr.

            Bannað er að láta renna í holræsakerfið sýrur, sterkan lút. olíur, kvikasilfur eða önnur efni, sem valdið geta skemmdum á holræsakerfinu eða varanlegri mengun.

 

6. gr.

            Kostnaður við aðalholræsakerfið greiðist úr bæjarsjóði, en til að standast þann kostnað ber húseigendum, sem húseignir eiga við götu, veg eða opið svæði. þar sem holræsi er lagt, að greiða stofngjald skv. reglugerð um gatnagerðargjöld í Ólafsfjarðarkaupstað. Auk stofngjalds af hverri húseign, sem tengd er holræsaherfi bæjarins eða holræsi. sem bærinn hefur yfirtekið og eins um húseignir, sem vegna sérstakra aðstæðna þurfa ekki að tengjast aðalholræsakerfinu, skal húseiganda skylt að greiða árlegt holræsagjald, sem nemur 0,15%, af hinu opinbera fasteignamati húss og lóðar eins og það er á hverjum tíma notað sem álagningarstofn fasteignaskatts.

 

7. gr.

            Lágmark holræsaárgjalds skal bæjarráð ákveða árlega. Undanþága frá greiðslu hins almenna fasteignaskatts veitir ekki rétt til undanþágu frá greiðslu holræsaárgjalds. Bæjarstjórn er heimilt, fyrir eitt ár í senn vegna sérstakra mikilvægra verkefna í holræsamálum, að hækka hið árlega holræsagjald án staðfestingar viðkomandi ráðuneytis. Að öðru leyti er bæjarstjórn heimilt að hækka eða lækka gjaldið allt að 50%, án stað­festingar ráðuneytisins. Slík ákvörðun gildir fyrir eitt ár í senn.

 

8. gr.

            Holræsagjaldið greiðist af húseiganda og er hann einn ábyrgur fyrir greiðslu þess gagnvart bæjarsjóði.

            Kröfur sem bæjarsjóður kann að öðlast skv. reglugerð þessari má taka lögtaki á kostnað gjaldanda og er gjaldið tryggt með lögveði í húseigninni.

            Gjalddagi holræsaárgjalds er 1. janúar ár hvert, en bæjarstjórn getur ákveðið að innheimta það á fleiri gjalddögum um leið og hinn almenni fasteignaskattur er innheimtur.

 

9. gr.

            Ákvæði þessarar reglugerðar ná til aura holræsa, sem bærinn hefur látið gera enda annist hann viðhald og endurnýjun þeirra, annarra en ræsa, sem eru hluti af frárennslislögn fasteignar og innan lóðarmarka hennar.

            Húseigendum er skylt að annast viðhald og endurnýjun ræsa frá húsum sínum að aðal­ræsi, skv. ákvæði 3. gr. um fyrirmæli bæjartæknifræðings eða umsjónarmanns.

            Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum, nema þyngri refsing liggi við að lögum. Mál út af brotum gegn reglugerð þessari skal farið með sem opinber mál.

            Reglugerð þessi, sem bæjarstjórn Ólafsfjarðar hefur samið og samþykkt staðfestist hér með samkvæmt vatnalögum nr. IS 20. júní 1923 til þess að öðlast gildi þegar í stað.

 

Félagsmálaráðuneytið, 5. apríl 1988.

F.h.r.

Hallgrímur Dalberg.

Hólmfríður Snæbjörnsdóttir


Þetta vefsvæði byggir á Eplica