Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

1548/2022

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 637/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2236 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af lagardýrum og af tilteknum lagardýraafurðum og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð (dýraheilbrigði).

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2236 frá 16. desember 2020 um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af lagardýrum og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 1251/2008. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2021, frá 19. mars 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 12. maí 2021, bls. 367.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1329 frá 10. ágúst 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2020/2235, (ESB) 2020/2236, (ESB) 2021/403 og (ESB) 2021/404 að því er varðar að framlengja umbreytingartímabil vegna notkunar á dýraheilbrigðisvottorðum, dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum og opinberum vottorðum sem krafist er vegna komu tiltekinna sendinga inn í Sambandið.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1329 sem nefnd er í 2. tölul. 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 21. desember 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.