Félagsmálaráðuneyti

400/1989

Reglugerð um holræsi í Stöðvarhreppi, S-Múlasýslu. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um holræsi í Stöðvarhreppi, S-Múlasýslu.

1. gr.

Þegar Stöðvarhreppur hefur 1átíð leggja holræsi í veg, götu eða annað opið svæði eða þar sem hreppurinn hefur tekið að sér viðhald og endurnýjun holræsa, er þeim húseigendum, er þar eiga húseignir að eða í námunda víð og til holræsa geta náð, skylt að leggja á Sinn kostnað holræsi frá húsinu, er flytji allt skólp frá því út í aðalræsið. Regnvatn of húsum og lóðum skal einnig ef unnt er, leiða í ræsið eða í sérstakt holræsi fyrir ofanjarðarvatn ef það er til staðar samkvæmt fyrirmælum byggingarfulltrúa. Vanræki einhver að láta gera nýtt holræsi eða endurnýja eldra innan hæfilegs frests, sem byggingarfulltrúi ákveður getur hreppurinn 1átíð vinna verkið á kostnað húseiganda.

 

2. gr.

Stöðvarhreppur lætur leggja holræsastúta út frá aðalræsi í nýjum götum, sem harm lætur gera eða hefur 1átíð gera. Skulu stútar þessir ná út fyrir götu að lóðarmörkum húsa. Heimlagnir og viðhald þeirra eru á kostnað húseigenda. Við raðhús eða fjölbýlishús skal um holræsastúta fara eftir nánari skilmálum um lóðaúthlutun.

 

3. gr.

Sveitarstjóri, verkstjóri sveitarfélagsins og byggingarfulltrúi þess, undir yfirstjórn hreppsnefndar fara með stjórn framkvæmda er holræsakerfi kauptúnsins varðar. Heimilt er sveitarstjóra að fela sérstökum umsjónarmanni yfirstjórn holræsakerfisins. Áður en húseig­andi byrjar að leggja holræsi sitt skal fá samþykki umsjónarmanns þar til. Skal húseigandi leggja fram teikningar of frárennsliskerfi sínu ef krafist verður og ber umsjónarmanni að aðstoða við gerð þeirra sé eftir því leitað. Skylt er húseiganda að hlýða fyrirmælum umsjónarmanns á öllu því er að tilhögun og lagningu ræsanna lýtur, enda hafi starfsmenn hreppsins ávallt eftirlit með því að vel og örugglega sé frá öllu gengið.

 

4. gr.

Allt efni, sem notað er til holræsagerðar, skal standast kröfur byggingarreglugerðar en auk þess getur byggingarnefnd sett reglur um sérstaka hreinsibrunna á holræsakerfi húseig­anda, þar sem ástæða þykir til.

 

5. gr.

Bannað er að láta renna í holræsakerfið sýrur, olíur eða önnur efni, sem valdið geta skemmdum á holræsakerfinu eða varanlegri mengun.

 

6. gr.

Kostnaður við aðalholræsakerfið greiðist úr sveitarsjóði, en til að standast þann kostnað er húseigendum, sem hús eiga við veg, götu eða svæði, þar sem holræsi er lagt í skylt að greiða árlega holræsagjald, sem nemur 0,20% of hinu opinbera fasteignamati húss og lóðar eins og það er á hverjum tíma þó aldrei lægra en kr. 500,00. Lágmarksgjald þetta skal endurskoða 1. janúar ár hvert og breytist í sama hlutfalli og fasteignamat í Stöðvarhreppi. Undanþága frá greiðslu hins almenna fasteignaskatts skapar ekki undanþágu frá greiðslu holræsagjalds. Gjald þetta getur hreppsnefnd lækkað eða hækkað um allt að 50% án þess að leita þurfi staðfestingar ráðuneytis.

 

7 . gr.

Holræsagjaldið greiðist of húseiganda og er harm einn ábyrgur fyrir greiðslu þess gagnvart sveitarsjóði. Kröfur sem sveitarsjóður kann að öðlast samkvæmt reglugerð þessari má taka lögtaki á kostnað gjaldanda og eru gjöld þessi tryggð með lögveði í húseigninni í næstu 2 ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hverskonar samningsveði og aðfararveði. Gjalddagar holræsagjalda eru hinir sömu og annarra fasteignagjalda ár hvert.

 

8. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt lögum. Með mál út of brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

 

Reglugerð þessi sem samin er og samþykkt of hreppsnefnd Stöðvarhrepps staðfestist hér með samkvæmt vatnalögum nr. 15 20. júní 1923, til þess að öðlast gildi þegar í stað.

 

Félagsmálaráðuneytið, 10. ágúst 1989.

 

F. h. r.

Berglind Ásgeirsdóttir.

Hólmfríður Snæbjörnsdóttir.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica