Matvælaráðuneyti

1547/2022

Reglugerð um (12.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast sex nýir töluliðir, 52., 53., 54., 55., 56. og 57. tölul., svo­hljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1329 frá 10. ágúst 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2020/2235, (ESB) 2020/2236, (ESB) 2021/403 og (ESB) 2021/404 að því er varðar að framlengja umbreytingartímabil vegna notkunar á dýraheilbrigðisvottorðum, dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum og opinberum vottorðum sem krafist er vegna komu tiltekinna sendinga inn í Sambandið.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1961 frá 17. október 2022 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2061 frá 24. október 2022 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2183 frá 8. nóvember 2022 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2316 frá 25. nóvember 2022 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2361 frá 1. desember 2022 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.

 

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar sem nefndar eru í 1. gr. eru birtar sem fylgi­skjöl 1-6 við þessa reglugerð.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 21. desember 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica