Félagsmálaráðuneyti

401/1973

Reglugerð um holræsi í Búðahreppi - Brottfallin

REGLUGERÐ

um holræsi í Búðahreppi.

1. gr.

Þegar Búðahreppur hefur látið leggja holræsi í veg götu eða annað opið svæði eða þar sem hreppurinn hefur tekið að sér viðhald og endurnýjun holræsa, er þeim húseigendum, er þar eiga húseignir að eða í námunda við og til holræsa geta náð, skylt að leggja á sinn kostnað holræsi frá húsinu, er flytji allt skólp frá því út í aðalræsið. Regnvatn af húsum og lóðum skal einnig, ef unnt er, leiða í ræsið eða í sérstakt holræsi fyrir ofanjarðarvatn, ef gert er , samkvæmt fyrirmælum verksjóra.  Vanræki einhver að láta gera nýtt holræsi eða endurnýja eldra, innan hæfilegs frests, sem sveitarstjóri ákveður, getur hreppurinn látið vinna verkið á kostnað húseiganda.

 

2. gr.

Búðahreppur lætur leggja holræsastúta út frá aðalræsi í nýjum götum, sem hann lætur gera eftir 1. janúar 1974. Skulu stútar þessir ná út fyrir götu að lóðar­mörkum húsa. Heimagnir eru á kostnað húseiganda. Við raðhús eða fjölbýlishús skal um holræsastúta fara eftir nánari skilmálum um lóðaúthlutun.

 

3. gr.

Sveitarstjóri, verkstjóri og byggingarfulltrúi, undir yfirstjórn sveitarstjórnar, fara með stjórn framkvæmda, er holræsakerfi kauptúnsins varða. Heimilt er sveitar­stjórn að fela sérstökum umsjónarmanni yfirstjórn holræsaherfisins. Áður en húseig­andi byrjar að leggja holræsi sitt skal fá samþykki umsjónarmanns þar til. Skal húseigandi leggja fram teikningar of frárennsliskerfi sínu, ef krafist verður. Skylt er húseiganda að hlýða fyrirmælum umsjónarmanns á öllu því, er að tilhögun og lagningu ræsanna lýtur, enda hafi starfsmenn hreppsins ávallt eftirlit með því, að vel og örugglega sé frá öllu gengið.

 

4. gr.

Allt efni, sent notað er til holræsagerðar, skal standast kröfur byggingarsamþykktar, en auk þess getur byggingarnefnd sett reglur um sérstaka hreinsibrunna á holræsakerfi húseiganda, þar sem ástæða þykir til.

 

5. gr.

Bannað er að láta renna í holræsakerfið sýrur, olíur eða önnur efni, seta valdið geta skemmdum á holræsakerfinu eða varanlegri mengun.

 

6. gr.

Kostnaður við aðalholræsakerfið greiðist úr sveitarsjóði, en til að standast þann kostnað, er húseigendum, sem hús eiga við veg, götu eða opið svæði, þar sem holræsi er lagt í, skylt að greiða árlegt holræsagjald, sem nemur 0.10% af hinu opin­bera fasteignamati húss eins og það er reiknað á hverjum tíma. Undanþága frá greiðslu hins almenna fasteignaskatts skapar ekki undanþágu frá greiðslu holræsagjalds. (Gjald þetta getur sveitarstjórnin hækkað um allt að 50% án þess að leita þurfi staðfestingar ráðuneytisins.

 

7. gr.

Holræsagjaldið greiðist of húseiganda og er hann einn ábyrgur fyrir greiðslu þess gagnvart sveitarsjóði. Kröfur, sem sveitarsjóður kann að öðlast samkvæmt reglugerð þessari, má taka lögtaki á kostnað gjaldenda og eru gjöld þessi tryggð með lögveði í húseigninni í næstu 2 ár eftir gjalddaga, með fasteignamatsveði fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Gjalddagi holræsagjalda er 2. janúar ár hvert.

 

8. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum allt að kr. 100 000.00, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt lögum. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af hreppsnefnd Búðahrepps, stað­festist hér með samkvæmt vatnalögum nr. 15 20. júní 1923, til að öðlast gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

 Félagsmálaráðuneytið, 14. desember 1973

 

F. h. r.

Hallgrímur Dalberg.

Guðmundur Karl Jónsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica