Tafla í 14. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
| Fjöldi heimilismanna | Frítekjumörk m.v. árstekjur |
| 1 | 6.288.094 kr. |
| 2 | 8.363.165 kr. |
| 3 | 9.746.546 kr. |
| 4 | 10.563.999 kr. |
| 5 | 11.444.332 kr. |
| 6 eða fleiri | 12.324.665 kr. |
Í stað fjárhæðarinnar "8.000.000 kr." í 15. gr. reglugerðarinnar kemur: 13.900.000 kr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 4. mgr. 17. gr. og 4. mgr. 18. gr., sbr. 4. og 5. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. 30. gr., laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, öðlast gildi 1. janúar 2026 og gildir um húsnæðisbætur sem greiddar eru vegna leigu íbúðarhúsnæðis frá og með þeim degi.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 29. desember 2025.
Inga Sæland.
Hildur Dungal.
B deild - Útgáfudagur: 30. desember 2025