Félagsmálaráðuneyti

302/1984

Reglugerð um holræsi í Breiðdalsvík, S.-Múlasýslu - Brottfallin

 

REGLUGERÐ

Um holræsi í Breiðdalsvík, S.-Múlasýslu

 

1. gr.

       Þegar Breiðdalshreppur hefur látið leggja holræsi í veg, götu eða annað opið svæði eða þar sem hreppurinn hefur tekið að sér viðhald og endurnýjun holræsa, er þeim húseigend­um, er þar eiga húseignir að eða í námunda við og til holræsa geta náð, skylt að leggja á sinn kostnað holræsi frá húsinu, er flytji allt skólp frá því út í aðalræsið. Regnvatn af húsum og lóðum skal einnig, ef unnt er, leiða í ræsið eða í sérstakt holræsi fyrir ofanjarðarvatn, ef gert er, samkvæmt fyrirmælum byggingarfulltrúa. Vanræki einhver að láta gera nýtt holræsi eða endurnýja eldra, innan hæfilegs frests, sem byggingarfulltrúi ákveður, getur hreppurinn látið vinna verkið á kostnað húseiganda.

 

2. gr.

       Breiðdalshreppur lætur leggja holræsastúta út frá aðalræsi í nýjum götum, sem hann íætur gera eftir 1. janúar 1985. Skulu stútar þessir ná út fyrir götu að lóðarmörkum húsa. Heimlagnir og viðhald þeirra eru á kostnað húseiganda. Við raðhús eða fjölbýlishús skal um holræsastúta fara eftir nánari skilmálum um lóðaúthlutun.

 

3. gr.

       Sveitarstjóri og byggingarfulltrúi, undir yfirstjórn hreppsnefndar fara með stjórn framkvæmda, er holræsakerfi kauptúnsins varðar. Heimilt er sveitarstjóra að fela sérstökum umsjónarmanni yfirstjórn holræsakerfisins. Áður en húseigandi byrjar að leggja holræsi sitt skal fá samþykki umsjónarmanns þar til. Skal húseigandi leggja fram teikningar af frárennsliskerfi sínu, ef krafist verður. Skylt er húseiganda að hlýða fyrirmælum umsjónarmanns á öllu því, er að tilhögun og lagningu ræsanna lýtur, enda hafi starfsmenn hreppsins ávallt eftirlit með því, að vel og örugglega sé frá öllu gengið.

 

4. gr.

       Allt efni, sem notað er til holræsagerðar, skal standast kröfur byggingarsamþykktar, en auk þess getur byggingarnefnd sett reglur um sérstaka hreinsibrunna á holræsakerfi húseiganda, þar sem ástæða þykir til.

 

5. gr.

       Bannað er að láta renna í holræsakerfið sýrur, olíur eða önnur efni, sem valdið geta skemmdum á holræsakerfinu eða varanlegri mengun.

 

6. gr.

       Kostnaður við aðalholræsakerfið greiðist úr sveitarsjóði, en til að standast þann kostnað er húseigendum, sem hús eiga við veg, götu eða svæði, þar sem holræsi er lagt í, skylt að greiða árlega holræsagjald, sem nemur 0,20% af hinu opinbera fasteignamati húss og lóðar eins og það er reiknað á hverjum tíma þó aldrei lægra en kr. 500,00. Lágmarksgjald þetta skal endurskoða 1. janúar ár hvert og breytast í sama hlutfalli og fasteignamat í Breiðdalshreppi. Undanþága frá greiðslu hins almenna fasteignaskatts skapar ekki undan­þágu frá greiðslu holræsagjalds. Gjald þetta getur hreppsnefnd lækkað eða hækkað um allt að 50% , án þess að leita þurfi staðfestingar ráðuneytis.

 

7. gr.

       Holræsagjaldið greiðist af húseiganda og er hann einn ábyrgur fyrir greiðslu þess gagnvart sveitarsjóði. Kröfur, sem sveitarsjóður kann að öðlast samkvæmt reglugerð þessari, má taka lögtaki á kostnað gjaldanda og eru gjöld þessi tryggð með lögverði í húseigninni í næstu 2 ár eftir gjalddaga, með fasteignamatsveði fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Gjalddagar holræsagjalda eru hinir sömu og annarra fasteignagjalda ár hvert.

 

8. gr.

       Brot gegn reglugerð þessari varða sektum allt að kr. 15 000.00 nema þyngri refsing liggi við samkvæmt lögum. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinherra mála.

      

       Reglugerð þessi sem samin er og samþykkt af hreppsnefnd Breiðdalshrepps staðfestist hér með samkvæmt vatnalögum nr. 15 20. júní 1923, til þess að öðlast gildi þegar í stað.

Jafnframt er úr gildi felld reglugerð um holræsi í Breiðdalshreppi nr. 288 17. október 1972.

 

Félagsmálaráðuneytið, 7. júní 1984.

 

Alexander Stefánsson.

Hólmfríður Snæbjörnsdóttir

 

 

 

 

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica