Með frítekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem hvorki hefur áhrif á greiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar annars vegar og á greiðslur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð hins vegar.
Frítekjumörk aldursviðbótar örorku- og hlutaörorkulífeyris ásamt heimilisuppbót örorku-, hlutaörorkulífeyris og sjúkra- og endurhæfingargreiðslna eru sameiginleg með örorkulífeyri, hlutaörorkulífeyri og sjúkra- og endurhæfingargreiðslum. Frítekjumörk þeirra greiðsluflokka eru því ekki sýnd sérstaklega í reglugerð þessari.
Frítekjumörk vegna greiðslna samkvæmt lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, skulu vera sem hér segir á árinu 2026:
| a. | Ellilífeyrir skv. 3. mgr. 22. gr.: | frítekjumark kr. | ||
| i. | Almennt | 523.896 | ||
| ii. | Vegna atvinnutekna | 2.524.800 | ||
| b. | Hálfur lífeyrir skv. 4. mgr. 22. gr.: | |||
| i. | Almennt | 4.102.800 | ||
| ii. | Vegna atvinnutekna | 2.524.800 | ||
| c. | Örorkulífeyrir skv. 3. mgr. 30. gr.: | 1.262.400 | ||
| d. | Hlutaororkulífeyrir skv. 4. mgr. 30. gr.: | |||
| i. | Almennt | 1.262.400 | ||
| ii. | Vegna atvinnutekna | 3.156.000 | ||
| e. | Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur skv. 9. mgr. 27. gr.: | |||
| i. | Almennt | 504.960 | ||
| ii. | Vegna atvinnutekna | 2.019.840 | ||
Frítekjumörk vegna greiðslna samkvæmt lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, skulu vera sem hér segir á árinu 2026:
| a. | Heimilisuppbót með ellilífeyri skv. 2. mgr. 8. gr.: | frítekjumark kr. | ||
| i. | Almennt | 523.896 | ||
| ii. | Vegna atvinnutekna | 2.524.800 | ||
| iii. | Með hálfum ellilífeyri | 4.102.800 | ||
| iv. | Með hálfum ellilífeyri vegna atvinnutekna | 2.524.800 | ||
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 63. gr., sbr. 62. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, öðlast gildi 1. janúar 2026. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1482/2024 um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2025.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 19. desember 2025.
Inga Sæland.
Ásgeir Runólfsson.
B deild - Útgáfudagur: 29. desember 2025