Félags- og húsnæðismálaráðuneyti

1489/2025

Reglugerð um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.

1. gr.

Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta í hverjum mánuði skv. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar miðast við tryggingahlutfall hins tryggða þannig að þær nemi aldrei hærri fjárhæð en 605.159 kr. á mánuði miðað við óskerta atvinnuleysistryggingu, sbr. 15. eða 19. gr. laganna.

2. gr.

Sá sem telst að fullu tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á rétt til óskertra grunnatvinnuleysisbóta sem skulu nema 383.870 kr. á mánuði. Lágmarksréttur til atvinnuleysistrygginga veitir rétt til ¼ hluta grunnatvinnuleysisbóta.

3. gr.

Frítekjumark skv. 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skal vera 94.487 kr. á mánuði.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 4. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, gildir um fjárhæð atvinnuleysistrygginga sem reiknast fyrir tímabilið frá og með 1. janúar 2026 og síðar og öðlast gildi 1. janúar 2026. Frá sama tíma fellur brott reglugerð nr. 1455/2024, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 19. desember 2025.

Inga Sæland.

Ásgeir Runólfsson.

B deild - Útgáfudagur: 29. desember 2025

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica