Félags- og húsnæðismálaráðuneyti

1487/2025

Reglugerð um fjárhæðir greiðslna og frítekjumark á árinu 2026 samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

1. gr.

Fjárhæðir greiðslna og frítekjumark samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, skulu vera sem hér segir á árinu 2026:

  1. Hámarksfjárhæð skv. 3. mgr. 11. gr. skal nema 1.162.162 kr. á mánuði.
  2. Greiðsla til foreldris í námi skv. 1. mgr. 16. gr. skal nema 325.978 kr. á mánuði.
  3. Grunngreiðsla til foreldris skv. 1. mgr. 20. gr. skal nema 325.978 kr. á mánuði.
  4. Barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. skulu nema 47.960 kr. á mánuði.
  5. Sérstakar barnagreiðslur skv. 2. mgr. 21. gr. skulu nema 13.886 kr. á mánuði vegna tveggja barna og 36.100 kr. á mánuði vegna þriggja barna.
  6. Frítekjumark skv. 2. mgr. 22. gr. skal vera 112.335 kr. á mánuði.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 10. mgr. 11. gr., 3. mgr. 16. gr., 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 21. gr. og 2. mgr. 22. gr., sbr. einnig 31. gr., laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, öðlast gildi 1. janúar 2026. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1487/2024, um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2025 samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 19. desember 2025.

Inga Sæland.

Ásgeir Runólfsson.

B deild - Útgáfudagur: 29. desember 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica