Félagsmálaráðuneyti

73/2001

Reglugerð um holræsagjald í Búðahreppi. - Brottfallin

073/2001

REGLUGERÐ
um holræsagjald í Búðahreppi.

1. gr.

Hverjum þeim sem á hús eða húshluta í Búðahreppi eða leigir lóð í sveitarfélaginu við götu eða opið svæði sem holræsi hefur verið lagt í ber að greiða árlegt holræsagjald til sveitarsjóðs.

Upphæð holræsagjaldsins skal vera 0,15% af fasteignamati allra húsa og lóða samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki holræsagjald.


2. gr.

Holræsagjald greiðist af hús- og íbúðareiganda, lóðareiganda ef um eignarlóð er að ræða en af leigutaka ef um leigulóð er að ræða og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Holræsagjaldið má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Holræsagjaldið nýtur lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samnings- og aðfararveði.


3. gr.

Sveitarstjórn getur samþykkt að fella niður eða lækka holræsagjald hjá tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum samkvæmt heimild í 5. mgr. 87. gr. vatnalaga, sbr. lög nr. 137/1995.


4. gr.

Gjalddagar holræsagjalds eru þeir sömu og gjalddagar fasteignaskatta og greiðist holræsagjaldið með fasteignasköttum.


Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af sveitarstjórn Búðahrepps, staðfestist hér með samkvæmt X. kafla vatnalaga nr. 15/1923 til þess að öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um holræsi í Búðahreppi nr. 401 frá 14. desember 1973.


Félagsmálaráðuneytinu, 23. janúar 2001.

F. h. r.
Húnbogi Þorsteinsson.
Guðjón Bragason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica