Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

1463/2022

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 966/2014 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1321/2013 um skrá Sambandsins yfir leyfð reykbragðefni á forstigi framleiðslu, til notkunar sem slík í eða á matvæli og/eða til framleiðslu á afleiddum reykbragðefnum.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 236/2022, frá 23. september 2022, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/502 frá 29. mars 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1321/2013 að því er varðar nafn leyfishafa fyrir reykbragðefnið "Scansmoke PB 1110" á forstigi framleiðslu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, 3. nóvember 2022, bls. 172.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 7. desember 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.