Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1453/2020

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 1364/2019 um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

1. gr.

Í stað dagsetningarinnar "31. desember 2020" í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 30. apríl 2021.

2. gr.

Við 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Skilyrði er að sjúkraþjálfarinn hafi starfað í að minnsta kosti tvö ár sem sjúkraþjálfari, í að minnsta kosti 80% starfshlutfalli, eftir löggildingu.

3. gr.

Í stað dagsetningarinnar "31. desember 2020" í 10. gr. reglugerðarinnar kemur: 30. apríl 2021.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 21. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 16. desember 2020.

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Hrönn Ottósdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.