Félagsmálaráðuneyti

170/1973

Reglugerð um holræsi fyrir Borgarnes. - Brottfallin

 

REGLUGERÐ

um holræsi fyrir Borgarnes.

 

1. gr.

            Reglugerð þessi gildir fyrir Borgarneshrepps.

 

2. gr.

Hreppsnefnd Borgarness tekur ákvörðun, samkvæmt skipulagi, um lagningu holræsa, aðalæða og götuæða. Sveitarstjóri eða annar í umboði hans, hefur fulla umsjón með og sér um daglegan rekstur á holræsakerfi hreppsins.

 

3. gr.

Þegar holræsi hefur verið lagt í veg, götu eða annað opið svæði, eða þar sem hreppurinn hefur tekið að sér viðhald og endurnýjun holræsa, er þeim húseigend­um, er þar eiga húseignir að eða í námunda við og til holræsa geta náð, skylt að leggja á sinn kostnað ræsi frá húsinu, er flytji sitt skólp frá því út í aðalræsið. A sama hátt skal farið með regnvatn af húsum og lóðum og það tengt við aðalræsi eða sérstakt regnvatnsræsi, sem gert er þá ráð fyrir, ef unnt er.

 

4. gr.

Ætli húseigandi að gera breytingar eða viðbætur við eldra ræsi, sem tengist hol­ræsakerfi hreppsins, ber honum með nægum fyrirvara að fá til þess skriflegt leyfi hjá sveitarstjóra eða þeim umboðsmanni hans, sem málið fellur undir.

 

5. gr.

Með umsókn húseiganda skal fylgja uppdráttur á nýlögnum eða breytingum á eldri lögnum. Uppdráttur þessi skal gerður af þar til hæfum manni, er hlotið hefur til þess löggildingu byggingarnefndar. Uppdrátturinn skal undirritaður af þessum tæknimanni, sem ber fulla ábyrgð á, að hann sé í fullu samræmi við reglugerð þessa og byggingarsamþykkt fyrir Borgarnes.

 

6. gr.

Samþykktur uppdráttur, er varðveitist í skjalasafni byggingarfulltrúa, skal vera undirritaður af tæknimanni og pípulagningameistara, sem hvor um sig ber ábyrgð samkv. grein 5 og grein 7. Uppdráttur skal gerður á haldgóðan pappír og þannig frá gengið að ekki máist við geymslu- Stærð uppdráttar skal vera 42 X 59.4 cm eða margfeldi þeirrar stærðar. Efst í hægra horni uppdráttar skal afmarkaður 7 X 10 cm reitur til áritunar fyrir byggingarfulltrúa. Uppdráttur skal sýna í góðum mæli­kvarða altar lagnir innan húss sem utan. Allir vatnslásar, niðurföll, hreinsilokar og brunnar, sem tilheyra kerfinu, skulu sýndir. Nauðsynlegar hæðartölur skulu miðaðar við hæðarmerkjakerfi Borgarness.

Sérteikning skal fylgja af brunnum, fitu-, sand-, olíu- og benzíngildrum og öðr­um þeim stöðum, sem byggingarfulltrúi æskir eftir nánari útfærslu á. Nota skal þá mælikvarða 1:20. Uppdráttur skal enn fremur sýna afstöðumynd af legu og teng­ingu húslagna við holræsakerfi hreppsins.

 

7. gr.

Pípulagningameistari sá, er verkið á að vinna, ritar nafn sitt á óæði eintök samþykkts uppdráttar, áður en verkið hefst. Pípulagningameistari ber fulla ábyrgð á, að verkið sé framkvæmt í samræmi við samþykktan uppdrátt. Sé skipt um pípulagn­ingameistara, meðan á verki stendur, ber að tilkynna það byggingarfulltrúa. Skal pípulagningameistari sá, er við tekur, gefa skriflegar upplýsingar um, hversu mikl­um hluta verksins sé þegar lokið. Er honum eigi heimilt að halda verkinu áfram, fyrr en hann hefur áritað áðurnefnda uppdrætti. Ávallt skal hafa áritaðan uppdrátt á vinnustað. Uppdráttur fellur úr gildi eftir eitt ár, sé þá ekki farið að vinna eftir honum.

 

8. gr.

Við altar framkvæmdir er húseiganda skylt að hlýða í einu og öllu fyrirmælum byggingarfulltrúa eða umboðsmanns hans í öllu því, er að tilhögun og lagningu ræsanna lýtur, enda hafi starfsmenn hreppsins ávallt eftirlit með því, að vel og örugglega sé frá öllu gengið. Húseiganda eða þeim, er ábyrgð ber á verkinu, er skylt að láta starfsmenn byggingarfulltrúa vita með nægum fyrirvara svo eðlilegri út­tekt á verkinu verði við komið, áður en það er hulið.

 

9. gr.

Allt efni, sem notað er til holræsagerðar, skal standast þær kröfur, sem til slíks eru gerðar í byggingarsamþykkt fyrir Borgarnes, en auk þess getur byggingar­nefnd sett reglur um holræsaefni, t. d. ef um nýjungar á því sviði er að ræða. Bygg­ingarfulltrúi eða umboðsmaður hans getur Bert kröfur um sérstaka hreinsibrunna á holræsakerfi húseiganda, þar sem ástæða þykir til.

 

10. gr.

Eigi er heimilt að láta renna i holræsakerfið sýrur, sterkan lút, olíur, kvikasilf­ur eða önnur efni, sem valdið geta skemmdum á holræsakerfinu eða varanlegri mengun. Á þeim stöðum, sem slík hætta er fyrir hendi, skal koma fyrir síum, gildr­um eða öðru, sem hindrar það, að þessi efni komist út í holræsakerfi hreppsins. Van­ræksla hér á og hugsanlegar skemmdir, sem lagfæringar þurfa með, skal húseigandi vera ábyrgur fyrir og bera kostnað af.

 

11. gr.

Kostnaður við aðalholræsakerfið greiðist úr sveitarsjóði, en til að standast þann kostnað ber húseigendum sem húseignir eiga við götu, veg eða opið svæði, þar sem holræsi er lagt í, að greiða stofngjald, sem nemur kr. 5 000.00 á hverja íbúð, sem búa á í, en kr. 12.00 á hvern rúmmetra í öðru húsnæði. Stofngjaldið skal greiðast áður en tenging við aðalræsi er leyfð. Auli stofngjalds af hverri húseign, sem tengd er holræsakerfi hreppsins eða holræsi, sem hreppurinn hefur yfirtekið og eins um húseignir, sem vegna sérstakra aðstæðna þurfa ekki að tengjast aðal­holræsakerfinu, skal húseiganda skylt að greiða árlegt holræsagjald, sem nemur 0.10% af hinu opinbera fasteignamati húss, eins og það er reiknað á hverjum tíma Undanþága frá greiðslu hins almenna fasteignaskatts skapar ekki undanþágu frá greiðslu holræsagjalds. Heimilt skal hreppsnefnd að lækka stofngjald samkvæmt þessari grein í sérstökum tilvikum svo sem við byggingu fjölbýlishúsa. Heimilt er hreppsnefnd fyrir eitt ár í senn, að hækka eða lækka holræsagjaldið um allt að 50% án staðfestingar ráðuneytisins.

 

12. gr.

Holræsagjaldið greiðist af húseiganda og er hann ábyrgur fyrir greiðslu þess gagnvart sveitarsjóði. Kröfur, sem sveitarsjóður kann að öðlast samkvæmt reglu­gerð þessari, má taka lögtaki á kostnað gjaldanda og eru gjöld þessi tryggð með lög­veði í húseigninni í næstu 2 ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Gjalddagi holræsagjalds er 1. janúar ár hvert, en hreppsnefnd getur ákveðið að innheimta það á fleiri gjalddögum árlega um leið og hinn almenni fasteignaskattur er innheimtur.

 

13. gr.

Ákvæði þessarar reglugerðar ná til allra holræsa, sem hreppurinn hefur látið gera, enda annist hann viðhald og endurnýjun þeirra, annarra en ræsa, sem eru hluti af frárennslislögn fasteignar og innan lóðarmarka hennar. Húseigendum er skylt að annast viðhald og endurnýjun ræsa frá húsum sínum að aðalræsi. Dragi húseig­andi aftur á móti á langinn nauðsynlegt viðhald getur hreppurinn ráðizt í þær fram­kvæmdir á kostnað húseiganda.

 

14. gr.

Brot á reglugerð þessari varðar sektum allt að kr. 200 000.00 nema þyngri refsing liggi við að lögum. Mál út af brotum gegn reglugerð þessari skal farið með sem op­inbert mál.

Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af hreppsnefnd Borgarneshrepps, stað­festist hér með samkvæmt vatnalögum nr. 15 20. júní 1923, til þess að öðlast gildi þegar í stað, og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

 

Félagsmálaráðuneytið, 15. maí 1973.

 

Hannibal Valdimarsson.

Hallgrímur Dalberg.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica