Félagsmálaráðuneyti

671/1980

Reglugerð um holræsi á Þórshöfn. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um holræsi á Þórshöfn.

1. gr.

Hreppsnefnd Þórshafnarhrepps hefur ein heimild til þess að leggja holræsi um Þórshafnarkauptún. Holræsagerð Þórshafnarhrepps er sjálfstætt fyrirtæki með sér­stöku reikningshaldi.

 

2. gr.

Þar sem hreppsnefnd hefur látið leggja holræsi í götu, er hverjum húseiganda, sem lóð á þar að, skylt að leggja á sinn kostnað ræsi frá húsinu, sem flytji skólp í aðalræsi og halda því við.

Regnvatn af húsi og lóð skal einnig að svo miklu leyti sem unnt er, leitt i holræsið.

 

3. gr.

Áður en húseigandi byrjar að leggja ræsi, skal hann skýra manni þeim, sem hreppsnefnd löggildir til lagningar holræsa i kauptúninu frá því og fá samþykki þar til.

Umsjónarmaður ákveður legu og gerð pípna þeirra, er holræsið mynda svo og alla tilhögun verksins eftir að hafa fengið í hendur uppdrátt, er sýni glögglega alla tilhögun lagnarinnar.

 

4. gr.

Hreppsnefnd löggildir menn, sem teljast skulu hæfir til að leggja og ganga frá holræsum. Þeir einir, sem hreppsnefnd löggildir til holræsalagningar, skulu hafa rétt til að leggja og ganga frá skólpræsum, sem standa í sambandi við holræsakerfi hreppsins.

 

5. gr.

Kostnaður við holræsagerð hreppsins, greiðist af holræsagerðinni og til þess að standa straum af kostnaði við lagningu og viðhald holræsanna, ber hverjum þeim, sem hús á eða lóðarréttindi við götu, sem hreppurinn hefur lagt holræsi í, að greiða árlega til holræsagerðarinnar 0.1% af faseignamati húss og lóðar, þó aldrei minna en kr. 3 000.00 af húsi eða hluta húss, sem talinn er sér í fasteignamati, enda sé skólp­lögn að viðkomandi húseign eða húshluta. Lágmarksgjald kr. 3 000.00 skal miðað við byggingarvísitölu með grunn 1. október 1978 og hækkar samkvæmt henni ár hvert.

Gjöld samkvæmt grein þessari er hreppsnefnd heimilt að hækka eða lækka um allt að 50 af hundraði, án þess að samþykki ráðuneytis komi til.

 

6. gr.

Heimilt er hreppsnefnd að yfirtaka núverandi holræsakerfi einstakra aðila, samkvæmt samkomulagi við hlutaðeigendur eða samkvæmt mati, ef ágreiningur verður.

 

7. gr.

Húseigandi ber ábyrgð á greiðslu holræsagjalds. Gjaldið hefur lögtaksrétt og er tryggt með lögveðsrétti í lóð og mannvirkjum lóðareiganda á henni næstu 2 ár eftir gjalddaga, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Árlegur gjalddagi holræsagjalda er hinn sami og gjalddagi fasteignaskatts ár hvert.

 

8. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum allt að kr. 100 000.00, sem rennur í sveitarsjóð. Mál út af brotum gegn reglugerð þessari skal farið með að hætti opinberra mála.

Reglugerð þessi sem samin er og samþykkt af hreppsnefnd Þórshafnarhrepps staðfestist hér með samkvæmt vatnalögum nr. 15 20. júní 1923 til þess að öðlast gildi þegar í stað.

Jafnframt er úr gildi felld reglugerð nr. 9 19. janúar 1967 með síðari breytingum.

 

Félagsmálaráðuneytið, 19. desember 1980.

 

F. h. r.

Hallgrímur Dalberg.

Hólmfríður Snæbjörnsdóttir


Þetta vefsvæði byggir á Eplica