Fara beint í efnið

Prentað þann 9. maí 2024

Breytingareglugerð

1419/2023

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 905/2021, um uppbætur og styrki til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Í stað "22.058 kr." í 4. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: 23.293 kr.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað "360.000 kr." í 1. málsl. 3. mgr. kemur: 500.000 kr.
  2. Í stað "720.000 kr." í 2. málsl. 3. mgr. kemur: 1.000.000 kr.

3. gr.

Í stað "1.440.000 kr." í 3. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur: 2.000.000 kr.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðinu "aukabúnaðar" í 1. málsl. 5. mgr. kemur: en að hámarki 66% þegar um er að ræða sérútbúna hreina rafbíla.
  2. Í stað "6.000.000 kr." í 2. málsl. 5. mgr. kemur: 7.400.000 kr.
  3. Á eftir 2. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Þegar um er að ræða sérútbúna hreina rafbíla getur fjárhæð styrks þó numið allt að 8.140.000 kr.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað "1.440.000 kr." í 1. mgr. kemur: 2.000.000 kr.
  2. Í stað "6.000.000 kr." í 2. mgr. kemur: 7.400.000 kr.
  3. Á eftir 2. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Þegar um er að ræða sérútbúna hreina rafbíla getur fjárhæð styrks þó numið allt að 8.140.000 kr.

6. gr.

Á eftir 14. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, svohljóðandi:

Fjárhæðir uppbóta og styrkja samkvæmt reglugerð þessari skulu taka breytingum í samræmi við breytingar á greiðslum almannatrygginga, sbr. 62. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, sbr. einnig 1. mgr. 14. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007.

7. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 14. gr., sbr. 10. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, sbr. 63. gr. laga um almannatryggingar, öðlast gildi 1. janúar 2024.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 18. desember 2023.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.