Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 20. des. 2022

1408/2021

Reglugerð um desemberuppbætur til maka- og umönnunarbótaþega árið 2021.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur til þeirra sem fá greiddar maka- eða umönnunarbætur á árinu 2021.

Tryggingastofnun ríkisins annast framkvæmd reglugerðarinnar.

2. gr. Desemberuppbót.

Einstaklingur sem hefur fengið greiddar maka- eða umönnunarbætur skv. 5. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, á árinu 2021 skal fá greidda desemberuppbót að fjárhæð 50.267 kr. enda hafi greiðsluþegi fengið mánaðarlegar greiðslur allt árið 2021.

Greiðsluþegi sem hefur fengið greiddar maka- eða umönnunarbætur skemur en tólf mánuði á árinu 2021 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. í samræmi við þann tíma sem hann hefur fengið greiðslur á árinu. Miða skal við 1/12 fyrir hvern mánuð.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 7. desember 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.