Matvælaráðuneyti

1393/2022

Reglugerð um (11.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast einn nýr töluliður, 51. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/80 frá 19. janúar 2022 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Breska konungsríkið í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiði­fuglum til Sambandsins.

 

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar sem nefnd er í 1. gr. er birt sem fylgiskjal 1 við þessa reglugerð.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 7. desember 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica