Félags- og húsnæðismálaráðuneyti

1387/2025

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 830/2021 um starfsemi og fjármögnun húsnæðissjóðs.

1. gr.

Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur nýr málsliður er orðast svo: Er sjóðnum heimilt að nýta eigið fé sjóðsins sem er umfram viðmiðanir sem fram koma í 2. mgr. 4. gr. til lánveitinga á samfélagslegum forsendum.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir 3. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður er orðast svo: Þrátt fyrir það er sjóðnum heimilt að veita hlutdeildarlán þó að skilmálar þeirra endurspegli ekki skilmála lánveitinga ríkissjóðs, enda sé nægt eigið fé til staðar til þess að mæta kostnaði sjóðsins af lánunum.
  2. Á eftir 1. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður er orðast svo: Miða skal við að eigið fé Húsnæðissjóðs nemi því sem mælt er fyrir um að eigið fé fjármálafyrirtækja sé á grundvelli laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 4. mgr. 13. gr. laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, nr. 137/2019, öðlast þegar gildi.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 2. desember 2025.

Inga Sæland.

Hildur Dungal.

B deild - Útgáfudagur: 16. desember 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica