Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 3. mars 2023

1372/2021

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 477/2017 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 28. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1325 frá 10. ágúst 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/977 að því er varðar gildistíma tímabundinna ráðstafana í tengslum við eftirlit með framleiðslu lífrænt ræktaðra vara. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 236/2021, frá 24. september 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, frá 11. nóvember 2021, bls. 152.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. nóvember 2021.

Svandís Svavarsdóttir
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.