Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

1364/2021

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 477/2016 um sértækar reglur um opinbert eftirlit með tríkínu í kjöti.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, 3. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/519 frá 24. mars 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1375 að því er varðar prófanir vegna tríkínu í hófdýrum og undanþágu Breska konungsríkisins frá því að prófa alisvín vegna tríkínu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 233/2021, frá 24. september 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, frá 11. nóvember 2021, bls. 110.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. nóvember 2021.

Svandís Svavarsdóttir
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.