Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1352/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 723/2017 um eldvarnir og eldvarnareftirlit.

1. gr.

Í stað orðsins "Mannvirkjastofnun" í 4. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar og sama orðs hvarvetna annars staðar í reglugerðinni kemur í viðeigandi beygingarmynd: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

2. gr.

Í stað orðanna "Menntun fyrir atvinnuslökkviliðsmenn" í a-lið 5. mgr. 22. gr. reglugerðarinnar kemur: Menntun fyrir slökkviliðsmenn skv. reglugerð nr. 792/2001, um Brunamálaskólann og réttindi og skyldur slökkviliðsmanna.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 39. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir, öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 12. nóvember 2021.

Ásmundur Einar Daðason.

Gissur Pétursson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.