Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 29. mars 2022

1313/2020

Reglugerð um útboðsvef, viðmiðunarfjárhæðir, skilgreiningu á verksamningum og innkaup samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO).

1. gr.

Öll innkaup opinberra aðila á vörum, þjónustu og verkum yfir innlendum og erlendum viðmiðunarfjárhæðum skulu auglýst opinberlega á útboðsvef (utbodsvefur.is) sem er sameiginlegur auglýsingavettvangur fyrir opinber útboð, sbr. 55. gr. laga um opinber innkaup.

2. gr.

Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs innanlands, samkvæmt 1. mgr. 23. gr. laga um opinber innkaup, eru fyrir vöru- og þjónustusamninga 15.500.000 kr. og fyrir verksamninga 49.000.000 kr.

3. gr.

Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 4. mgr. 23. gr. laga um opinber innkaup skulu vera sem hér segir:

Opinberir aðilar að frátöldum sveitarfélögum, stofnunum þeirra, öðrum opinberum aðilum á þeirra vegum eða samtökum sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:

Vörusamningar 18.120.000 kr.
Þjónustusamningar 18.120.000 kr.
Verksamningar 697.439.000 kr.

Sveitarfélög, stofnanir þeirra, aðrir opinberir aðilar á þeirra vegum og samtök sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:

Vörusamningar 27.897.000 kr.
Þjónustusamningar 27.897.000 kr.
Verksamningar 697.439.000 kr.

4. gr.

Viðmiðunarfjárhæð vegna innkaupa á opinberum þjónustusamningum um félagsþjónustu og aðra sértæka þjónustu samkvæmt VIII. kafla laga um opinber innkaup, sem gerðir eru af opinberum aðilum, er 97.770.000 kr.

5. gr.

Til verksamninga skv. 2. mgr. 4. gr. laga um opinber innkaup teljast samningar sem hafa að markmiði framkvæmd, eða framkvæmd og hönnun, verka sem tengjast einhverri þeirri starfsemi sem um getur í II. viðauka tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/24/ESB frá 26. febrúar 2014 um opinber innkaup eða verks, eða hvers konar framkvæmd verks sem svarar til krafna sem settar eru fram af kaupanda sem hefur afgerandi áhrif á gerð eða hönnun verksins.

6. gr.

Í samræmi við o-lið 11. gr. laga um opinber innkaup taka lögin ekki til þjónustusamninga er varða rannsókn og þróun nema þá sem falla undir CPV kóða 73000000-2 til 73120000-9, 73300000-5, 73420000-2 og 73430000-5 í sameiginlegu innkaupaorðasafni og þá að því tilskyldu að báðum eftirfarandi skilyrðum sé fullnægt að ávinningur fari eingöngu til kaupanda til nota í eigin starfsemi og að endurgjald fyrir þjónustuna, sem veitt er, komi alfarið frá kaupanda.

7. gr.

Viðmiðunarfjárhæðir vegna kostnaðarþátttöku opinberra aðila sbr. 14. gr. laga um opinber innkaup skulu vera 697.439.000 kr. vegna verksamninga og 27.897.000 kr. vegna þjónustusamninga.

Skilgreining á verksamningum sem falla undir mannvirkjagerð skv. 1. mgr. 14. gr. laga um opinber inkaup skal taka mið af þeirri flokkun sem kemur fram í II. viðauka tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/24/ESB frá 26. febrúar 2014 um opinber innkaup.

8. gr.

Þegar innkaupum á fyrirhuguðu verki eða þjónustu er skipt upp í fleiri sjálfstæða samninga skal miða við samanlagt virði allra samninganna. Sama á við þegar innkaupum á vöru af svipaðri tegund er skipt upp í fleiri sjálfstæða samninga. Sé samanlagt virði allra samninganna yfir viðmiðunarfjárhæðum skal líta svo á að verðgildi hvers og eins samnings sé einnig yfir viðmiðunarmörkum.

Þrátt fyrir að heildarvirði samninga sem greinir í 1. mgr. sé yfir viðmiðunarfjárhæðum er heimilt að gera einstaka samninga án útboðs fyrir allt að 20% af samanlagðri heildarfjárhæð allra samningshluta ef áætlað verðmæti viðkomandi samningshluta, án virðisaukaskatts, er lægra en 10.408.000 kr. vegna vöru eða þjónustu og 130.100.000 kr. vegna verks.

9. gr.

Viðmiðunarfjárhæðir skv. 3.-5. gr. reglugerðar þessarar gilda einnig um útboðsskyldu vegna innkaupa samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup sem Ísland er aðili að.

10. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1828 frá 30. október 2019 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/24/ESB að því er varðar viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra vöru-, þjónustu- og verksamninga og hönnunarsamkeppna.

Reglugerðin er sett með heimild í 23., 55. og 122. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 260/2020 um auglýsingu innkaupa á útboðsvef, viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa á Evrópska efnahagssvæðinu og samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 2. desember 2020.

F. h. r.

Sigurður H. Helgason.

Hrafn Hlynsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.