Fara beint í efnið

Prentað þann 23. apríl 2024

Breytingareglugerð

131/2007

Reglugerð um breytingu á reglugerð um öryggi fiskiskipa sem eru 15 metrar eða lengri að mestu lengd, nr. 122/2004.

1. gr.

Við II. kafla um smíði, vatnsþéttleika og ýmsan búnað í I. viðauka bætist ný regla sem verður 20. regla, svohljóðandi:

20. regla

Varnir gegn flæði.

(1) Setja skal í austurbrunna við afturþil í fiskilestum eða á afturþilið sjálft um það bil 20 cm frá lestarbotni vökvaborðsviðvörunarbúnað, sem skynjar samsöfnun vökva við venjulegan hliðar- og stafnhalla. Skynjunarkerfið skal gefa viðvörun á heyranlegan og sýnilegan hátt á þeim stöðum, þar sem stöðug vöktun er höfð. Þetta ákvæði tekur þó ekki til fiskiskipa sem búin eru farmtönkum, s.s. loðnu- og síldveiðiskip.

(2) Setja skal í kjalsogið í vélarúmum fremst og aftast vökvaborðsviðvörunarbúnað, sem skynjar samsöfnun vökva við venjulegan hliðar- og stafnhalla. Skynjunarkerfið skal gefa viðvörun á heyranlegan og sýnilegan hátt á þeim stöðum, þar sem stöðug vöktun er höfð.

(3) Stjórnbúnaður allra loka fyrir sjóinntök, frárennsli fyrir neðan sjólínu eða austurssogskerfi, skal vera aðgengilegur.

(4) Við reglubundið árlegt eftirlit með virkni vökvaborðsviðvörunarbúnaðar skal sýnt fram á virkni hans.

2. gr.

Við 8. gr. bætist ný málsgrein, sem verður 5. málsgrein, eftirfarandi:

Ákvæði reglugerðar þessarar um eiturefnabúninga (6. tölul. 15. reglu IV. kafla), neyðaröndunartæki (5. tölul. 13. reglu V. kafla og 4. tölul. 33. reglu V. kafla) og vinnuöryggishandbók (7. tölul. 13. reglu VI. kafla) taka þegar gildi og skulu uppfyllt eigi síðar en 1. júlí 2008.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 4. mgr. 3. gr. laga um eftirlit með skipum nr. 47/2003, öðlast þegar gildi og skal ákvæði 1. gr. uppfyllt eigi síðar en 1. júlí 2008. Jafnframt fellur brott reglugerð, nr. 781/2006, um breytingu á reglugerð um öryggi fiskiskipa sem eru 15 metrar eða lengri að mestu lengd, nr. 122/2004.

Samgönguráðuneytinu, 1. febrúar 2007.

Sturla Böðvarsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.