Fara beint í efnið

Prentað þann 28. apríl 2024

Breytingareglugerð

1308/2023

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 530/2020, um verndun starfsmanna á vinnustöðum gegn hættu á heilsutjóni af völdum efna sem geta valdið krabbameini eða stökkbreytingu í kímfrumum.

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Reglugerð þessi gildir um hvers konar starfsemi sem lög nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, gilda um þar sem starfsmenn verða fyrir eða eiga á hættu að verða fyrir mengun frá efni sem getur valdið krabbameini, stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun, sbr. þó strangari ákvæði í sérlögum og sérreglum um einstök efni sem geta valdið krabbameini, stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun.

2. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Markmið reglugerðar þessarar er að koma í veg fyrir heilsutjón starfsmanna sem vinna með efni, sem geta valdið krabbameini, stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun, eða verða fyrir mengun frá slíkum efnum.

3. gr.

3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Í reglugerð þessari er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir:

  1. Efni sem getur valdið eiturhrifum á æxlun: Sérhvert efni eða efnablanda sem uppfyllir viðmið samkvæmt flokki 1A eða 1B yfir efni sem geta valdið eiturhrifum á æxlun í I. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1272/2008, sbr. a-lið 1. gr. reglugerðar nr. 415/2014, um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablanda.
  2. Efni sem getur valdið eiturhrifum á æxlun án viðmiðunarmarka: Sérhvert efni eða efnablanda sem getur valdið eiturhrifum á æxlun sem hefur engin örugg mengunarmörk að því er varðar heilsu starfsmanna og er tilgreint sem slíkt í dálknum með táknun í mengunarmarkaskrá I. viðauka reglugerðar nr. 390/2009, um mengunarmörk og aðgerðir til að draga úr mengun á vinnustöðum.
  3. Efni sem getur valdið eiturhrifum á æxlun með viðmiðunarmörkum: Sérhvert efni eða efnablanda sem getur valdið eiturhrifum á æxlun þar sem til eru örugg mengunarmörk þar sem undir þeim mörkum er engin hætta sem ógnað getur heilsu starfsmanna og er tilgreint sem slíkt í dálknum með táknun í mengunarmarkaskrá I. viðauka reglugerðar nr. 390/2009, um mengunarmörk og aðgerðir til að draga úr mengun á vinnustöðum.
  4. Efni sem getur valdið krabbameini:

    1. Sérhvert efni eða efnablanda er uppfyllir viðmið samkvæmt flokki 1A eða 1B yfir efni sem geta valdið krabbameini, í I. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1272/2008, sbr. a-lið 1. gr. reglugerðar nr. 415/2014, um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.
    2. Sérhvert efni, efnablanda eða vinnsluferli sem vísað er til í I. viðauka reglugerðar þessarar sem og efni eða efnablanda sem verður til í vinnsluferli sem vísað er til í I. viðauka reglugerðar þessarar.
  5. Efni sem getur valdið stökkbreytingu: Sérhvert efni eða efnablanda sem getur valdið stökkbreytingu í kímfrumum og uppfyllir viðmið samkvæmt flokki 1A og 1B yfir kímfrumustökkbreytivalda í I. viðauka reglugerðar (EB) nr. 1272/2008, sbr. a-lið 1. gr. reglugerðar nr. 415/2014, um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.
  6. Heilsufarsskoðun: Mat á heilbrigðisástandi einstaka starfsmanns í tengslum við áhrif af efnum á vinnustað sem geta valdið krabbameini, stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun.
  7. Líffræðileg viðmiðunarmörk: Mörk styrks tiltekins efnis í viðeigandi líffræðilegu umhverfi, umbrotsefni þess eða vísbendingar um áhrif.
  8. Mengunarmörk: Hæsta leyfilega meðaltalsmengun (tímavegið meðaltal) efnis sem getur valdið krabbameini, stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun í andrúmslofti starfsmanna á tilgreindu viðmiðunartímabili.

4. gr.

Í stað orðanna "eða stökkbreytingu" í 1., 3. og 4. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: , stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun.

5. gr.

Í stað orðanna ,"eða stökkbreytingu" í 3. mgr., a-, b-, d-, f-, g-, h- og k-lið 3. mgr. og 6. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: , stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun.

6. gr.

Í stað orðanna "eða stökkbreytingu" í b-, c- og d-lið 1. mgr. og 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: , stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun.

7. gr.

Í stað orðanna "eða stökkbreytingu" í 1., 2., 3. og 4. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur: , stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun.

8. gr.

Í stað orðanna "eða stökkbreytingu" í 1. og 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar kemur: , stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun.

9. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "eða stökkbreytingu" í 2. mgr. kemur: , stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun.
  2. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Þjálfun skv. 1. mgr. skal veitt reglulega öllum starfsmönnum í heilbrigðisþjónustu þar sem hætta er á mengun frá efni sem getur valdið krabbameini, stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun, einkum þar sem ný, hættuleg lyf sem innihalda þessi efni eru notuð.

10. gr.

Í stað orðanna "eða stökkbreytingu" í tvígang í 1. mgr. og í 2. og 3. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar kemur: , stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun.

11.gr.

Í stað orðanna "eða stökkbreytingu" í 1. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar kemur: , stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun.

12. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "eða stökkbreytingu" í 1., 2., 3., 6. og 7. mgr. kemur: , stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun.
  2. Í stað orðsins "læknisskoðun" í 1., 2. og 3. mgr. kemur: heilsufarsskoðun.
  3. Á eftir orðunum "eða stökkbreytingu" í 4. mgr. kemur: en 5 ár eftir að starfsmaður lætur af störfum með efni sem getur valdið eiturhrifum á æxlun.
  4. Við 5. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Líffræðileg vöktun og tengdar kröfur geta verið hluti heilsuverndar starfsmanna.
  5. Við bætist ný 7. mgr., svohljóðandi: Ef líffræðileg viðmiðunarmörk hafa verið sett í I. viðauka reglugerðar nr. 553/2004, um verndun starfsmanna gegn hættu á heilsutjóni af völdum efna á vinnustöðum, skal heilsufarsskoðun vera skyldubundin vegna vinnu með efni sem geta valdið krabbameini, stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun, í samræmi við þær aðferðir sem mælt er fyrir um í I. viðauka reglugerðar nr. 553/2004, um verndun starfsmanna gegn hættu á heilsutjóni af völdum efna á vinnustöðum. Upplýsa skal starfsmenn um þessa skyldu áður en þeim er falið verkefni sem hefur í för með sér hættu á mengun frá efni sem getur valdið krabbameini, stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun.
  6. 8. mgr., sem verður 9. mgr., orðast svo: Atvinnurekandi skal tilkynna Vinnueftirliti ríkisins um öll sjúkdómstilfelli, dauðsföll og skaðleg áhrif á kynstarfsemi og frjósemi hjá fullorðnum starfsmönnum eða eiturhrif á þroskun hjá afkvæmum þeirra sem álitin eru afleiðing vegna mengunar af efni á vinnustað sem getur valdið krabbameini, stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun.

13. gr.

Heiti reglugerðarinnar verður: Reglugerð um verndun starfsmanna á vinnustöðum gegn hættu á heilsutjóni af völdum efna sem geta valdið krabbameini, stökkbreytingu eða eiturhrifum á æxlun.

14. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 38. gr. og 3. mgr. 51. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, að fenginni umsögn stjórnar Vinnueftirlits ríkisins og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/431 frá 9. mars 2022 um breytingu á tilskipun 2004/37/EB um verndun starfsmanna gegn áhættu vegna áhrifa af krabbameinsvöldum eða stökkbreytivöldum á vinnustað, sem vísað er til í XVIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2023, öðlast þegar gildi.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 29. nóvember 2023.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Bjarnheiður Gautadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.