Fara beint í efnið

Prentað þann 5. maí 2024

Breytingareglugerð

1301/2023

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 989/2016, um skipsbúnað.

1. gr.

B-liður 1. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1667 frá 8. ágúst 2023 um reglur um beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/90/ESB að því er varðar hönnunar-, smíða- og nothæfiskröfur sem og prófunarstaðla fyrir búnað um borð í skipum og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2022/1157. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 79 frá 2. nóvember 2023, bls. 737-1037.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 24. gr. skipalaga nr. 66/2021, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 16. nóvember 2023.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Marta Mirjam Kristinsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.