Fara beint í efnið

Prentað þann 28. apríl 2024

Breytingareglugerð

1295/2023

Reglugerð um (21.) breytingu á reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH).

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast einn nýr töluliður, svohljóðandi:

82) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1132 frá 8. júní 2023 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar efni sem eru krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun sem sæta takmörkunum, sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 234/2023, þann 22. september 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 79 frá 2. nóvember 2023, bls. 713-717.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1132 frá 8. júní 2023 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar efni sem eru krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun sem sæta takmörkunum.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 23. nóvember 2023.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stefán Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.