Fara beint í efnið

Prentað þann 29. apríl 2024

Breytingareglugerð

1293/2023

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 954/2013 um þrávirk lífræn efni.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir stafliðir, svohljóðandi:

t) Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/866 frá 24. febrúar 2023 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar perflúoróoktansýru (PFOA), sölt hennar og skyld efnasambönd, sem vísað er til í tl. 12w, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 233/2023, þann 22. september 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 79 frá 2. nóvember 2023, bls. 709-712.
u) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2400 frá 23. nóvember 2022 um breytingu á IV. og V. viðauka við reglugerð (ESB) 2019/1021 um þrávirk, lífræn mengunarefni, sem vísað er til í tl. 12w, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 264/2023, þann 27. október 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83 frá 16. nóvember 2023, bls. 439-446.
v) Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1608 frá 30. maí 2023 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar skráningu á perflúoróhexansúlfónsýru (PFHxS), söltum hennar og skyldum efnasamböndum, sem vísað er til í tl. 12w, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 267/2023, þann 27. október 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 23. nóvember 2023, bls. 102-104.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/866 frá 24. febrúar 2023 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar perflúoróoktansýru (PFOA), sölt hennar og skyld efnasambönd.
  2. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2400 frá 23. nóvember 2022 um breytingu á IV. og V. viðauka við reglugerð (ESB) 2019/1021 um þrávirk, lífræn mengunarefni.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1608 frá 30. maí 2023 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar skráningu á perflúoróhexansúlfónsýru (PFHxS), söltum hennar og skyldum efnasamböndum.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 11. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og 43. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 23. nóvember 2023.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stefán Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.