Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

1278/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 747/2018 um starfsemi slökkviliða.

1. gr.

Eftirfarandi orðskýring bætist við 2. gr. reglugerðarinnar í viðeigandi stafrófsröð:

Skilgreint skipulag: Skipulag mönnunar slökkviliðs sem skilgreint er og rökstutt í brunavarnaáætlun sem samþykkt er af viðkomandi sveitarstjórn og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

2. gr.

Í stað orðsins "Mannvirkjastofnun" í 1. og 4. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar og sama orðs hvarvetna annars staðar í reglugerðinni kemur í viðeigandi beygingarmynd: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

3. gr.

2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Slökkviliðsstjóri, varaslökkviliðsstjóri eða stjórnandi sem uppfyllir hæfniskröfur viðkomandi slökkviliðs skal ávallt vera á vakt eða á bakvakt og til staðar á starfssvæði slökkviliðsins.

4. gr.

Í stað "17. gr." í 2. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar kemur: 15. gr.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "föstu" í b- og c-lið 1. mgr. kemur: skilgreindu.
  2. Á eftir orðinu "útkallseining" í 2. mgr. kemur: , nema sýnt sé fram á annað í brunavarnaáætlun.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar:

  1. Tilvísunin "sbr. 23. gr." fellur brott.
  2. Í stað "18. gr." kemur: 16. gr.

7. gr.

Á eftir orðunum "útkallseining (4-7 manns eftir þjónustuflokki)" í 3. mgr. 21. gr. reglugerðarinnar bætist: sbr. þó undantekningu í 4. mgr. 6. gr., c-lið 1. mgr. 15. gr. og 2. mgr. 15. gr.

8. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 11. og 39. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 15. nóvember 2021.

Ásmundur Einar Daðason.

Gissur Pétursson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.