1273/2025
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 770/2010 um flugreglur.
1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1772 frá 12. september 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 923/2012 að því er varðar starfrækslureglur í tengslum við notkun kerfa og kerfishluta rekstrarstjórnunar flugumferðar og flugleiðsöguþjónustu í samevrópska loftrýminu og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 1033/2006, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 147/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 4. september 2025, bls. 453-473.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 188. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 602/2008, um kröfur er varða verklagsreglur og flugáætlanir innan samevrópska loftrýmisins.
Innviðaráðuneytinu, 20. nóvember 2025.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
B deild - Útgáfudagur: 28. nóvember 2025
Reglugerð sem fellur brott: