Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Stofnreglugerð

1265/2014

Reglugerð um Net- og upplýsingaöryggisstofnun Evrópu.

1. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XI. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð (ESB) nr. 526/2013 frá 21. maí 2013 um Net- og upplýsingastofnun Evrópu (ENISA), sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 130/2014 frá 27. júní 2014, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 25. september 2014, bls. 486.

2. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 16. gr. laga nr. 69/2003 um Póst- og fjarskiptastofnun með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur brott reglugerð nr. 1116/2009, um að koma á fót Net- og upplýsingaöryggisstofnun Evrópu, með síðari breytingum.

Innanríkisráðuneytinu, 17. desember 2014.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.