1257/2025
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 823/2016 um timbur og timburvörur.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1010 frá 5. júní 2019 um samræmingu á kvöðum um skýrslugjöf á sviði löggjafar í tengslum við umhverfið og um breytingu á reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 166/2006 og (ESB) nr. 995/2010, tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 2002/49/EB, 2004/35/EB, 2007/2/EB, 2009/147/EB og 2010/63/ESB, reglugerðum ráðsins (EB) nr. 338/97 og (EB) nr. 2173/2005 og tilskipun ráðsins 86/278/EBE sem vísað er til í tölulið 9c, XVII. kafla samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 300/2024, þann 6. desember 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 1045-1057.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað orðsins "Mannvirkjastofnun" í 1. mgr. kemur: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Hlutverk Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
3. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1010 frá 5. júní 2019 um samræmingu á kvöðum um skýrslugjöf á sviði löggjafar í tengslum við umhverfið og um breytingu á reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 166/2006 og (ESB) nr. 995/2010, tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 2002/49/EB, 2004/35/EB, 2007/2/EB, 2009/147/EB og 2010/63/ESB, reglugerðum ráðsins (EB) nr. 338/97 og (EB) nr. 2173/2005 og tilskipun ráðsins 86/278/EBE.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 20. gr. laga um timbur og timburvörur, nr. 95/2016, og öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 27. nóvember 2025.
F. h. r.
Stefán Guðmundsson.
B deild - Útgáfudagur: 28. nóvember 2025