Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

1255/2025

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (esb) 2024/1834 um framkvæmd tilskipunar evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/eb að því er varðar kröfur varðandi visthönnun viftna sem ganga fyrir hreyflum með rafinnafl á bilinu 125 w til 500 kw og um niðurfellingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (esb) nr. 327/2011.

1. gr.

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 6z í kafla IV í II. viðauka og í lið 26za í kafla IV í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 194/2025 frá 19. september 2025, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1834 frá 3. júlí 2024, um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun viftna sem ganga fyrir hreyflum með rafinnafl á bilinu 125 W til 500 kW og um niðurfellingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 327/2011.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1834 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 75/2025, 27. nóvember 2025, bls. 113-141.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur brott reglugerð nr. 387/2013 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 327/2011 um kröfur varðandi visthönnun viftna sem ganga fyrir hreyflum með rafinnafl á bilinu 125 W og 500 kW.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 27. nóvember 2025.

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

B deild - Útgáfudagur: 28. nóvember 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica