Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
Listi yfir áhættusöm þriðju lönd, sem birtur er sem fylgiskjal I við reglugerð nr. 105/2020, tekur breytingum til samræmis við þær breytingar sem greinir í 1. gr. reglugerðar þessarar. Listinn er birtur sem fylgiskjal I við reglugerð þessa þannig breyttur.
Í stað fylgiskjals II við reglugerðina, viðvíkjandi birtingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1219 ásamt viðauka, kemur nýtt fylgiskjal II, viðvíkjandi birtingu á framseldri reglugerð (ESB) 2025/1393 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2025/1184 til að innleiða endurskoðunarákvæði, sbr. 1. gr., sem birt er með reglugerð þessari.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 56. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 og öðlast þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 25. nóvember 2025.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Bryndís Helgadóttir.
B deild - Útgáfudagur: 26. nóvember 2025
Listi yfir áhættusöm þriðju lönd,
sbr. framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1675.
I. Áhættusöm þriðju lönd sem hafa sett fram skriflega, pólitíska skuldbindingu háttsettra aðila til að ráða bót á greindum annmörkum og hafa útbúið aðgerðaáætlun með fjármálaaðgerðahópnum (FATF).
| Nr. | Áhættusamt þriðja land |
| 1 | Afganistan |
| 2 | Alsír |
| 3 | Angóla |
| 4 | Búrkína Fasó |
| 5 | Kamerún |
| 6 | Côte d´Ivoire (Fílabeinsströndin) |
| 7 | Lýðstjórnarlýðveldið Kongó |
| 8 | Haítí |
| 9 | Kenya |
| 10 | Laos |
| 11 | Líbanon |
| 12 | Malí |
| 13 | Mónakó |
| 14 | Mósambík |
| 15 | Myanmar (Mjanmar) |
| 16 | Namibía |
| 17 | Nepal |
| 18 | Nígería |
| 19 | Suður-Afríka |
| 20 | Suður-Súdan |
| 21 | Sýrland |
| 22 | Tansanía |
| 23 | Trínidad og Tóbagó |
| 24 | Vanúatú |
| 25 | Venesúela |
| 26 | Víetnam |
| 27 | Jemen |
II. Áhættusöm þriðju lönd sem hafa sett fram skriflega, pólitíska skuldbindingu háttsettra aðila til að ráða bót á greindum annmörkum og hafa ákveðið að fara fram á tækniaðstoð við að innleiða aðgerðaáætlun fjármálaaðgerðahópsins, og sem eru auðkennd í opinberri yfirlýsingu fjármálaaðgerðahópsins (FATF).
| Nr. | Þriðja land með mikla áhættu |
| 1 | Íran |
III. Áhættusöm þriðju lönd þar sem er viðvarandi og veruleg hætta á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og sem hefur ítrekað mistekist að ráða bót á greindum annmörkum, og sem auðkennd eru í opinberri yfirlýsingu fjármálaaðgerðahópsins (FATF).
| Nr. | Áhættusamt þriðja land |
| 1 | Alþýðulýðveldið Kórea |
FRAMSELD REGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) 2025/1393
frá 8. júlí 2025
um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2025/1184 til að innleiða endurskoðunarákvæði
FRAMKVÆMDASTJÓRN EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins,
með hliðsjón af tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849 frá 20. maí 2015 um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til peningaþvættis eða til fjármögnunar hryðjuverka, um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins ESB nr. 648/2012, og um niðurfellingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/60/EB og tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2006/70/EB (1), einkum 2. mgr. 9. gr.,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Þann 10. júní 2025 samþykkti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1184 (2) um breytingu á lista yfir áhættusöm þriðju lönd sem mælt er fyrir um í framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1675 (3). Þessi breytingargerð fylgir tilmælum fjármálaaðgerðahópsins (FATF) sem setur alþjóðlega staðla.
2) Lönd sem hafa ekki verið opinberlega tilgreind sem lönd sem falla undir kröfur um aðgerðir eða aukið eftirlit af hálfu fjármálaaðgerðahópsins geta samt sem áður verið ógn fyrir heilleika fjármálakerfis ESB. Ef aðild slíkra landa að FATF er ógild um stundarsakir vegna grófra brota á þeim grundvallarreglum sem liggja til grundvallar þessum staðlasetningaraðila er líklegt að ógnin við fjármálakerfi ESB aukist. Því ætti framkvæmdastjórnin að grípa til afgerandi aðgerða til að varðveita heilleika fjármálakerfis ESB og ljúka óháðu mati á því hvort slík lönd séu áhættusöm þriðju lönd, eins og um getur í 9. gr. tilskipunar (ESB) 2015/849. Með hliðsjón af núverandi landfræðipólitískum aðstæðum er mikilvægt að framkvæmdastjórnin bregðist hratt við. Því er viðeigandi að kveða á um að framkvæmdastjórninni beri skylda til að ljúka slíku mati fyrir 31. desember 2025. Til að bæta við nálgunina sem var fylgt í framseldri reglugerð (ESB) 2025/1184 ætti að innleiða slíka skyldu í þá reglugerð.
3) Því ætti að breyta framseldri reglugerð (ESB) 2025/1184 til samræmis við það.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr. a bætist við framselda reglugerð (ESB) 2025/1184.
„1. gr. a
Eigi síðar en 31. desember 2025 skal framkvæmdastjórnin ljúka rýni á þriðju löndum sem hafa ekki verið skilgreind sem lönd sem falla undir kröfur um aðgerðir eða aukið eftirlit af hálfu FATF en hafa ógilda aðild að þeim alþjóðlega staðlasetningaraðila um stundarsakir, til að meta hvort breyta þurfi viðaukanum við framselda reglugerð (ESB) 2016/1675 til samræmis við það.“
Reglugerð þessi öðlast gildi á tuttugasta degi eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 8. júlí 2025.
Fyrir hönd framkvæmdastjórnarinnar,
Ursula VON DER LEYEN
forseti.
(1) Stjtíð. ESB L 141, 5.6.2015, bls. 73, ELI: https://data.europa.eu/eli/dir/2015/849/oj.
(2) Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1184 frá 10. júní 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2016/1675 til að bæta Alsír, Angóla, Côte d’Ivoire (Fílabeinsströndin), Kenya, Laos, Líbanon, Mónakó, Namibíu, Nepal og Venesúela á lista yfir áhættusöm þriðju lönd sem hafa sett fram skriflega, pólitíska skuldbindingu háttsettra aðila til að ráða bót á þeim annmörkum sem greinst hafa og hafa útbúið aðgerðaáætlun með FATF og fjarlægja Barbados, Gíbraltar, Jamaíku, Panama, Filippseyjar, Senegal, Úganda og Sameinuðu arabísku furstadæmin af þeim lista (OJ L, 2025/1184, 16.7.2025, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg_del/2025/1184/oj).
(3) Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1675 frá 14. júlí 2016 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849 með því að auðkenna áhættusöm þriðju lönd með annmarka í stefnu (Stjtíð. ESB L 254, 20.9.2016, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg_del/2016/1675/oj).