Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Ógild reglugerð

1220/2019

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/759 um umbreytingarráðstafanir vegna beitingar lýðheilsukrafna við innflutning á matvælum sem innihalda bæði afurðir úr jurtaríkinu og unnar afurðir úr dýraríkinu (samsettar afurðir).

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 248/2019, frá 25. október 2019, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/759 frá 13. maí 2019 um umbreytingarráðstafanir vegna beitingar lýðheilsukrafna við innflutning á matvælum sem innihalda bæði afurðir úr jurtaríkinu og unnar afurðir úr dýraríkinu (samsettar afurðir). Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 90, frá 7. nóvember 2019, bls. 250.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt heimild í 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast gildi 1. janúar 2021 og gildir til og með 20. apríl 2021.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. desember 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.