1202/2025
Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 205/2023 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænt ræktaðra vara.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/452 frá 19. desember 2024 um leiðréttingu á framseldri reglugerð (ESB) 2021/642 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 að því er varðar tilteknar upplýsingar sem eiga að koma fram á merkingu lífrænt ræktaðra vara. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 202/2025 frá 19. september 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 20. nóvember 2025, bls. 437.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, og II. kafla laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, og 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 21. nóvember 2025.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.
Elísabet Anna Jónsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 24. nóvember 2025