Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Stofnreglugerð

1191/2008

Reglugerð um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar.

1. gr.

Upphæðir bóta samkvæmt lögum nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og greiðslur samkvæmt 63. gr. sömu laga, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2009:

Lífeyristryggingar kr. á mánuði kr. á ári
Ellilífeyrir skv. 1. mgr. 17. gr. 29.294 351.528
Örorkulífeyrir skv. 4. mgr. 18. gr. 29.294 351.528
Örorkustyrkur skv. 1. mgr. 19. gr. 21.657 259.884
Örorkustyrkur skv. 2. mgr. 19. gr. 29.294 351.528
Barnalífeyrir skv. 6. mgr. 20. gr. 21.657 259.884
Aldurstengd örorkuuppbót (100%) skv. 2. mgr. 21. gr. 29.294 351.528
Tekjutrygging ellilífeyrisþega skv. 2. mgr. 22. gr. 92.441 1.109.292
Tekjutrygging örorku-, slysa- eða
endurhæfingarlífeyrisþega skv. 3. mgr. 22. gr. 93.809 1.125.708
Annað kr. á dag kr. á mánuði kr. á ári
Vasapeningar skv. 8. mgr. 48. gr. 41.895 502.740
Dagpeningar utan stofnunar skv. 9. mgr. 48. gr. 2.280
Fyrirframgreiðsla meðlags skv. 1. mgr. 63. gr. 21.657 259.884

2. gr.

Upphæðir bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2009:

kr. á mánuði kr. á ári
Mæðra- og feðralaun með tveimur börnum
skv. 2. mgr. 2. gr. 6.269 75.228
Mæðra- og feðralaun með þremur börnum eða fleiri
skv. 2. mgr. 2. gr. 16.300 195.600
Barnalífeyrir skv. 1. mgr. 3. gr. 21.657 259.884
Umönnunargreiðslur (100%) skv. 1. mgr. 4. gr. 117.176 1.406.112
Makabætur og umönnunarbætur (80%) skv. 5. gr. 98.482 1.181.784
Dánarbætur skv. 1. mgr. 6. gr. 32.257
Dánarbætur skv. 2. mgr. 6. gr. 24.165 289.980
Endurhæfingarlífeyrir skv. 1. mgr. 7. gr. 123.103 1.477.236
Heimilisuppbót skv. 8. gr. 27.242 326.904

3. gr.

Upphæð bóta samkvæmt 2. gr. reglugerðar nr. 752/2002 um styrki og uppbætur Tryggingastofnunar ríkisins til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða, með síðari breytingum, skal vera sem hér segir fyrir árið 2009:

kr. á mánuði kr. á ári
Uppbót vegna reksturs bifreiðar skv. 1. mgr. 2. gr. 10.828 129.936

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2009. Frá sama tíma falla úr gildi reglugerðir nr. 1226/2007 og 293/2008 um hækkun bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 23. desember 2008.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Ágúst Þór Sigurðsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.