Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Breytingareglugerð

119/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 183/2020, um stofnframlög ríkis og sveitarfélaga, húsnæðissjálfseignarstofnanir og almennar íbúðir, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað fjárhæðanna "6.651.000 kr.", "9.312.000 kr." og "1.663.000 kr." í 1. mgr. kemur: 6.957.000 kr.; 9.740.000 kr. og 1.739.000.
  2. Í stað fjárhæðarinnar "7.179.000 kr." í 2. mgr. kemur: 7.509.000 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 8. mgr. 10. gr. laga um almennar íbúðir, nr. 52/2016, með síðari breytingum, öðlaðist gildi 1. janúar 2022.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 17. janúar 2022.

Sigurður Ingi Jóhannsson
innviðaráðherra.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.