Innviðaráðuneyti

1138/2025

Reglugerð um breytingu á reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga, nr. 922/2023.

1. gr.

Við 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, e-liður, svohljóðandi:

  1. Þjóðskrá Íslands hefur leiðrétt lögheimilisskráningu aftur í tímann á grundvelli laga um lögheimili og aðsetur.

2. gr.

Við 9. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:

  1. Sveitarstjórn getur ákveðið, eða falið byggðarráði eða kjörstjórn að ákveða, að við atkvæðagreiðslu á kjörstað, séu notuð kjörgögn, sbr. c-lið 1. mgr. 6. gr. í stað kjörgagna skv. a-lið. Heimildin getur náð til alls tímabils atkvæðagreiðslunnar eða einstakra daga hennar. Atkvæðagreiðsla fer þá fram með sama hætti og mælt er fyrir um í a-d-lið, nema að kjósandi leggur kjörseðilinn í kjörseðilsumslag. Kjósandi skal síðan árita og undirrita fylgibréfið í viðurvist fulltrúa kjörstjórnar sem vottar atkvæðagreiðsluna með undirritun sinni á fylgibréfið. Nægilegt er að fulltrúi kjörstjórnar votti einn fylgibréf kjósandans. Að því loknu er kjörseðilsumslag og fylgibréfið sett í sendiumslag og varðveitt með öruggum og tryggum hætti.
  2. Hafi kjósandi greitt atkvæði oftar en einu sinni skal aðeins hið síðastgreidda atkvæði koma til greina.

3. gr.

Á eftir orðinu "stað" í 4. tölul. 5. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar kemur: , tímasetning.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 7. mgr. 133. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 3. nóvember 2025.

Eyjólfur Ármannsson.

Ingilín Kristmannsdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 4. nóvember 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica